Stjörnuafkomendur standa sig vel
Stjarna frá Vindási var fædd árið 1984 að Vindási í Hvolhreppi rétt utan við Hvolsvöll. Ræktandi hennar er Kári Arnórsson sem lengi hefur staðið í framvarðasveit hestamennskunnar en hann var meðal annars formaður Landssambands hestamannafélaga um nokkurt skeið. Stjarna var undan Fjöður frá Hnjúki í Húnavatnssýslu, einni af ættmæðrum Vindásræktunarinnar og Hervari frá Sauðárkróki. Afkvæmi Stjörnu hafa getið sér gott orð bæði á keppnis- og kynbótabrautum en fjögur af afkvæmum hennar hafa hlotið 1. verðlauna kynbótadóm, en þó hefur góður árangur í keppni enn frekar vakið athygli á henni sem ræktunarhryssu.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Landsliðsteymi Danmerkur fyrir árið 2027 klárt