Stjörnutölt á laugardag

  • 12. mars 2012
  • Fréttir
Stjörnutölt á laugardag

Stjörnutölt Léttis fer fram nk. laugardaginn í Skautahöllinni á Akureyri. 

 
„Húsið opnar klukkan 19:30 og mót hefst stundvíslega hálftíma síðar. Von er á gríðarlega sterku móti í ár og verður vafalaust frábær skemmtun fyrir áhorfendur. Stjörnutöltið hefur sjaldan eða aldrei verið jafn glæsilegt og ljóst að fjölmennt verður á pöllunum í ár.
 
Í fyrra sigraði Eyjólfur Þorsteinsson á Klerki frá Bjarnanesi, eftir mikla baráttu við Sigurð Sigurðarson á Glæðu frá Þjóðólfshaga og Árna Björn Pálsson á gæðingnum Furu frá Enni. Ljóst er að árið í ár verður engu síðra og von á frábærri skemmtun fyrir áhorfendur.
 
Tökum laugardagskvöldið frá og fjölmennum á Stjörnutölt Léttis,“ segir í tilkynningu frá hestamannafélaginu Létti.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link