Stóðhestadagatalið 2021 er komið út

  • 6. janúar 2021
  • Fréttir

Kæri hestaunnandi

Gleðilegt nýtt ár, megi 2021 reynast ykkur farsælt og færa ykkur góðar stundir.

Stóðhestadagatalið er dagatal hestamannsins. Og er FRÍTT.

Dagatalið hefur verið gefið út síðan 2008 og hafa hinir ýmsu gæðingar prýtt síður þess.

Í ár er það stólpagripurinn Ísak frá Þjórsárbakka sem prýðir kápuna, forsíðu og baksíðu.

Myndirnar tók hin knáa Louisa Hackl.

Í dagatalinu er að finna 12 af þeim fjölmörgu frábæru gæðingum sem hryssueigendum standa til boða næsta sumar.

Einnig er að finna upplýsingar um hvern hest, svosem ættir, hæsta dóm, helstu afrek, símanúmer og nafn umráðamanns.

Hinar ýmsu vörur og þjónustur tengdar hestinum er að finna bæði inná mánuðunum sjálfum og á auglýsingaopnum á milli mánaða.

Sýningarskrá RML og mótaskrá LH hefur yfirleitt verið að finna merkta inná viðkomandi daga..

En sýningarskrá RML var ekki búið að gefa út þegar dagatalið fór í prent, sökum Covid.

En mótaskrá LH er inná dagatalinu.

Gott er að nota dagatalið, merkja inná hvenær hryssa á að ganga, hvenær hún er leidd undir hest og niðurstaða sónar.

Nú eða merkja við mót sem stefnt er á að fylgjast með eða taka þátt í.

Vil ég þakka þeim fjölmörgu ljósmyndurum sem hafa oftar en ekki lagt mikið á sig við að festa ógleymanleg  “ móment” á filmu ,okkur hestamönnum og eigendum stóðhesta til mikillar ánægju. Og fá þeir ekki nægilegt hrós skilið oft tíðum fyrir sitt framlag. Því eins og sagt er góð ljósmynd segir meira en þúsund orð.

Höfundar mynda eru titlaðir á fremstu opnu.

Nældu þér í þitt FRÍA eintak í verslunum Líflands, Lynghálsi, Borgarnesi, Hvolsvelli, Blönduósi og Akureyri, Baldvin og Þorvaldi Selfossi, Ástund Austurveri, Egilsstöðum og Hornafirði. Einnig er dagatalinu dreift á Hólaskóla.

Dagatalið er komið í dreifingu í Líflandi Lynghálsi og Ástund. En verður dreift í aðrar verslanir á næstu dögum.

Njótið vel

Kveðja
Viggó Sigurðsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link