Stóðhestaval og valparanir í WF

  • 17. mars 2023
  • Fréttir
Í Worldfeng er að finna alls konar fróðleik

Mikinn fróðleik er að finna inni í upprunaættbók íslenska hestsins, Worldfengur.com, s.s. upplýsingar um einstaklinga, ætterni þeirra og mat á byggingu og kostum þeirra á kynbótasýniningum. Kynbótamatið sem endurspeglar gæði hrossa til framræktunar byggir einmitt á slíkum upplýsingum, bæði á einstaklingnum sjálfum og öllu skylduliði hans. Þegar verið er að huga að næstu kynslóð hrossa er ómetanlegt að geta dregið þessar upplýsingar saman í pörun foreldra hrossanna sem standa að baki næstu kynslóð.

Inni í WF er hægt að nýta sér í þeim tilgangi Stóðhestaval og Valparanir, frekari skýringar sem stendur að baki þeim kostum má sjá hér í skýringartexta.

Skýringartexti

 

Elsa Albertsdóttir og Þorvaldur Árnason

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar