Stóðhestaveisla Rangárhallarinnar næstu helgi
Stóðhestaveisla Rangárhallarinnar á Hellu fer fram næstkomandi laugardag 19. mars kl. 13.
Fleiri spennandi hestar hafa bæst í hóp þeirra sem áður hafa verið tilkynntir. Þar má nefna Þul frá Hólum, Gljúfra frá Berg, Kolvið frá Strandarhöfði, Ísak frá Skíðbakka 1, Skugga frá Hofi 1, Kóral frá Lækjarbotnum, Sæhyl frá Stóru-Hildisey, Bjarkar frá Tóftum, Ketil frá Kvistum og Stíganda frá Stóra-Hofi.
Áður var tilkynnt að Þóroddur frá Þóroddstöðum muni mæta með afkvæmum á sýninguna, einnig kemur Hrymur frá Hofi með afkvæmum, Sær frá Bakkakoti með afkvæmum, Héðinn frá Feti, Ágústínus frá Melaleiti, Álmur frá Skjálg ásamt stóðhestum frá ræktunarbúi 2010.
Forsala aðgönumiða fara fram í Fóðurblöndunni á Hvolsvelli, Klippistofunni á Hellu, Baldvin og Þorvaldi á Selfossi og Líflandi í Reykjavík.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH