Stóðhestaveislan

  • 8. apríl 2016
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Ölnir fá Akranesi, Ómur frá Kvistum, Vökull í öðru veldi og margir fleiri!

Gestalistinn inn á stóðhestaveisluna stækkar dag frá degi og þar fara sannarlega saman bæði magn og gæði.

Sigurvegarinn í fimm vetra flokki stóðhesta á síðasta landsmóti, sjálfur Ölnir frá Akranesi, ætlar að mæta á veisluna á laugardag. Þessi einstaki gæðingur sem hreif landsmótsgesti með sínum snilldartöktum, kemur nú aftur fram og verður spennandi að sjá hann að nýju.

Ómur frá Kvistum er annar fyrrum landsmótssigurvegari sem mun mæta á stóðhestaveisluna. Ómur hefur vakið athygli fyrir frábær afkvæmi á undanförnum árum og aldrei að vita nema einhver þeirra muni fylgja föður sínum á laugardag.

Stálasonurinn Örvar frá Gljúfri hlaut tæplega 8,70 fyrir kosti  í kynbótadómi í fyrra, þar af hvorki meira né minna en 10 fyrir skeið og hann mun væntanlega fara á því sem næst ljóshraða í gegnum höllina fyrir veislugesti.

Einn af hæst dæmdu fjögurra vetra folunum á síðasta ári var Héðinssonurinn Vökull frá Árbakka. hann mætir til leiks um helgina, árinu eldri og öflugri og verður gaman að sjá einn af þeim ungu folum sem gerir vafalaust atlögu að efsta sæti á landsmóti í sumar.

Hvað er betra en einn góður Vökull? Annar góður Vökull að sjálfsögðu! Við erum að tala um glæsiskepnuna Vökul frá Efri-Brú sem vakti mikla athygli í fyrra fyrir fas sitt og fótaburð, sannkallað augnakonfekt þar á ferð.

Miðasala á veisluna fer fram í Líflandi Reykjavík og Borgarnesi, Top Reiter, Ástund og hjá Baldvin og Þorvaldi á Selfossi. 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link