Stóðhestaveislum Eiðfaxa aflýst

  • 19. mars 2021
  • Fréttir

Ljósvaki frá Valstrýtu kom frá á Ræktunardegi Eiðfaxa 2020. Knapi var Árni Björn Pálsson. Mynd: Gunnar Freyr

Sú ákvörðun hefur nú verið tekin að aflýsa hinum árlegu Stóðhestaveislum þetta árið í ljósi sóttvarna og þess takmarkaða fjölda sem má koma saman á mannamótum vegna COVID19-veirunnar.

Stóðhestaveislurnar hafa jafnan verið einn vinsælasti innanhúsviðburður hvers árs, bæði norðan heiða og sunnan og þetta árið stóð til að hafa Stóðhestaveislu á Suðurlandi 10. apríl nk. og á Norðurlandi 8. maí. Af því verður ekki því miður.

Þess í stað mun Eiðfaxi blása til utanhússviðburðar í byrjun maí í Víðidalnum í Reykjavík, líkt og í fyrra þegar Ræktunardagur Eiðfaxa var haldinn þar. Mörg af bestu kynbótahrossum landsins munu koma þar fram í tengslum við útgáfu á hinni árlegu Stóðhestabók og verður þessi viðburður auglýstur rækilega þegar nær dregur.

Hlökkum til að sjá þig í Víðidalnum í vor!

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link