Stóðréttir í Svarfaðardal
Laugardaginn 2. október verða haldnar stóðréttir í Tungurétt í Svarfaðardal.
Reiknað er með að stóðið komi að Tungum um kl 11.00 en réttarstörf hefjast kl 13:00. Um 130 hross er í afréttinni á öllum aldri og mikið af vel ættuðum gæingsefnum. Veðrið lofar góðu og því tilvalið að líta á Svarfdælinga og Svarfdælska gæðinga. Kaffisala á staðnum.
Stóðréttardansleikur verður svo haldinn að Rimum í Svarfaðardal að kvöldi laugardags. Húsið opnar kl 23:00 og munu þeir Stulli og Dúi halda uppi rífandi stemningu. Aldurstakmark er 16.ára og aðgangseyrir er kr 2000.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH