Landsmót 2024 Stöðulistar íþróttagreina – skráning keppenda

  • 21. júní 2024
  • Tilkynning

Þátttökurétt í tölti og kappreiðum ráðast af stöðulistum löglegra móta sem lokið er fyrir 17. júní 2024. Hestar sem taka þátt í gæðingakeppni hafa einnig rétt á að taka þátt í öllum íþróttagreinum mótsins séu þeir inni á stöðulistum.

Hver knapi ber ábyrgð á sinni skráningu út frá stöðulista sem birtur verður á heimasíðu Landsmóts og öllum helstu vefmiðlum 21. júní. Knapar eru beðnir um að fylgjast vel með og bregðast skjótt við skráningu. Hver knapi ber ábyrgð á því að skráningargjöld séu greidd og mikilvægt er að senda kvittun á [email protected] svo skráningin sé gild. Skráningargjaldið er kr. 15.000.

  • 30 hæstu einkunnir í tölti T1
  • 20 bestu tímarnir í 100m skeiði P2
  • 14 bestu tímarnir í 150m skeiði P3
  • 14 bestu tímarnir í 250m skeiði P1

Auk þeirra sem eru inni á stöðulistum, eiga heimsmeistarar í hverri grein boðssæti frátekið og taka þeir ekki sæti frá öðrum á listanum. Þau Sara Sigurbjörnsdóttir, Jóhanna Margrét Snorradóttir, Elvar Þormarsson, Jón Ársæll Bergmann, Herdís Björg Jóhannsdóttir, Glódís Rún Sigurðardóttir, Benedikt Ólafsson eiga því boð á LM.

16 ára aldurstakmark (árg. 2008) er í töltinu.

Smellið hér til að skoða stöðulistana!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link