Stórbrotin töltkeppni – úrslit-

  • 7. ágúst 2011
  • Fréttir
Stórbrotin töltkeppni - úrslit-

Það ætlaði allt um koll að keyra í áhorfendastúkum St. Radegund þegar sterkustu töltarar heims öttu kappi í A-úrslitum greinarinnar. Þrír Íslenskir landsliðsmenn voru á meðal keppenda, Jóhann Skúlason og Hnokki frá Fellskoti, Hinrik Bragason og Sigur frá Hólabaki og Viðar Ingólfsson og Tumi frá Stóra-Hofi.

Eftir sýningu á hægu tölti og hraðabreytingum leiddu Karl Zingsheim og Dagur keppnina en Jóhann og Hnokki voru ekki langt undan. Á yfirferðartölti mátti sjá stórbrotnar sýningar keppenda, þar sem áhorfendur klöppuðu og stöppuðu og hvöttu keppendur áfram. Hlaut þar Karl mun lægri einkunnir en Jóhann og varði hann því titilinn sinn og hampar tölthorninu góða í fimmta sinn!

Rigningin setti stórt strik í reikningin fyrir Viðar Ingólfsson en eftir að hófhlífarnar sem hann notaði voru viktaðar kom í ljós að þær voru of þungar og varð því svo að keppni hans var gerð ógild. Dapurlegur endapunktur þar.

Hinrik og Sigur urðu í fjórða sæti flokksins með 8,28 í lokaeinkunn.

 

01: 011 Jóhann R. Skúlason [WC] [IS] – Hnokki frá Fellskoti [IS2003188470] 8,78
    SLOW 8,5 – 9,5 – 8,5 – 8,0 – 9,0 = 8,67  
    LENG 8,5 – 9,5 – 8,5 – 8,5 – 8,5 = 8,50  
    FAST 9,0 – 9,5 – 9,5 – 9,0 – 9,0 = 9,17  
02: 066 Karl Zingsheim [DE] – Dagur [DE2001143741] 8,61
    SLOW 9,0 – 9,0 – 9,0 – 9,5 – 8,5 = 9,00  
    LENG 8,5 – 7,5 – 9,0 – 9,0 – 7,5 = 8,33  
    FAST 8,5 – 8,5 – 8,5 – 9,0 – 8,0 = 8,50  
03: 102 Anne Stine Haugen [NO] – Muni frá Kvistum [IS2003181964] 8,33
    SLOW 8,5 – 8,5 – 8,5 – 8,5 – 9,0 = 8,50  
    LENG 8,0 – 8,0 – 8,5 – 8,0 – 8,0 = 8,00  
    FAST 8,5 – 8,0 – 8,5 – 8,5 – 8,5 = 8,50  
04: 009 Hinrik Bragason [IS] – Sigur frá Hólabaki [IS2003156270] 8,28
    SLOW 8,0 – 8,5 – 8,0 – 7,5 – 8,5 = 8,17  
    LENG 8,0 – 8,5 – 8,0 – 8,0 – 8,0 = 8,00  
    FAST 8,5 – 9,0 – 8,5 – 8,5 – 9,0 = 8,67  
       
06: 103 Camilla Mood Havig [NO] – Kiljan frá Blesastöðum 1A [IS2002187810] 7,00
    SLOW 8,5 – 8,0 – 8,0 – 8,5 – 9,5 = 8,33  
    LENG 7,5 – 6,0 – 6,5 – 6,0 – 5,5 = 6,17  
    FAST 7,0 – 6,5 – 6,0 – 7,0 – 4,5 = 6,50  

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link