Stórmót Funa á Melgerðismelum
Nú styttist í opið stórmót hestamanna á Melgerðismelum og kynbótasýningu á hinum hestvæna Náttfaravelli, sem hefur hlotið lof margra knapa. Það er hestamannafélagið Funi í Eyjafirði sem heldur mótið.
Mótið fer fram dagana 20. og 21. ágúst og kynbótasýningin dagana á undan. Þetta er í þriðja sinn sem mótið er haldið með þessu sniði en keppt verður í gæðingakeppni í öllum flokkum auk töltkeppni og kappreiða með peningaverðlaunum.
Stórmótið á Melgerðismelum verður auglýst nánar þegar kemur fram í ágúst.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH