Stórsýning á flötinni

  • 26. ágúst 2012
  • Fréttir
Stórsýning á flötinni

Eins og flestum er kunnugt á Akureyrarbær 150 ára afmæli á þessu ári. Hestamannafélagið Léttir hefur ákveðið að gefa afmælisbarninu hestasýningu á flötinni framan við Samkomuhúsið á sjálfan afmælisdaginn miðvikudaginn 29. ágúst.

Til að þetta sé gerlegt þurfum við hestamenn að sameinast og mæta með okkar hesta á sýninguna sem verður með sama sniði og var þá og þegar Léttir var með vikulegar sýningar á flötinni á síðasta áratug síðustu aldar. Allir eru velkomnir að taka þátt í sýningunni, vanir óvanir, ungir sem gamlir og allt þar á milli, allskonar hestar, góðir gæðingar og aðrir góðir reiðhestar. Ein regla er ófrávíkjanleg, Til að taka þátt í sýningunni. Vertu í lopapeysu eða Léttisbúningi.
 
Til að skipuleggja þetta allt saman er boðað til opins fundar í reiðhöllinni á mánudagskvöldið 27 ágúst kl 20.00.   Vonandi fjölmennum við hestamenn þar og undirbúum þessu góðu afmælisgjöf handa bænum okkar.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link