Stórsýning sunnlenskra hestamanna í kvöld

  • 2. apríl 2026
  • Fréttir
Hefst klukkan 20:00 í Rangárhöllinni á Hellu

Hin árlega Stórsýning sunnlenska hestamanna fer fram í Rangárhöllinni á Hellu í kvöld. Sýningin mun einkennast af léttleika og skemmtun og verður boðið uppá eitthvað fyrir alla hestaáhugamenn – unga sem aldna.

Sýning hefst klukkan 20:00 en húsið opnar klukkan 18:00, ekki verða tekin frá sæti og því mikilvægt að mæta tímanlega. Veitingar verða seldar í Rangárhöllinni en engar vínveitingar verða á staðnum. Miðaverð er 4.000 krónur en frítt er inn fyrir börn 12 ára og yngri.

Hægt er að kaupa miða í hurð en einnig á Tix.is

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link