Strákarnir okkar klikka ekki

  • 8. ágúst 2023
  • Sjónvarp Fréttir
Tvö gull í fyrstu grein Heimsmeistaramótsins

Fyrstu keppnisgrein á Heimsmeistaramótinu í Hollandi er lokið og bæði gullin sem í boði voru fóru til Íslands. Það er óhætt að segja að pressa hafi verið á þeim Elvari Þormarssyni á Fjalladís frá Fornusöndum og Benedikt Ólafssyni á Leiru-Björk frá Naustum III en Íslendingar gerðu hreinlega ráð fyrir því að þeir myndu næla sér í tvö gull. Þeir ollu ekki vonbrigðum og skiluðu sitthvoru gullinu. Elvar og Fjalladís í fullorðinsflokki og Benedikt og Leira-Björk í ungmennaflokki.

Það er óhætt að segja að mótið hefði ekki getað byrjað mikið betur. Af þeim sex aldursflokkum kynbótahrossa eru fimm hross ræktuð á Íslandi og tvö fyrstu gullin á mótinu fara til Íslands.

Gæðingaskeiðið fór fram í hellirigningu og öll framkvæmd tók töluverðan tíma en það hefur verið viðloðandi þessa grein á Heimsmeistaramótum. Fyrstu í braut af íslensku knöpunum var Þorgeir Ólafsson á Goðasteini frá Haukagili, Hvítársíðu en Goðasteinn stytti sig í fyrsta spretti og mættu þeir ekki í seinni sprett enda fimmgangurinn er í fyrramálið enda þeirra aðalgrein og sigur í samanlögðum fimmgangsgreinum úr myndinni. Benjamín Sandur Ingólfsson og Júní frá Brúnum voru næstir og stóðu sig ágætlega en þetta er í fyrsta sinn sem þeir keppa saman og enduðu í 20. sæti.

Í seinna holli voru aðal kanónur íslenska liðsins í þessari grein þeir Elvar og Benedikt. Elvar var framarlega í rásröð í seinna holli og Benedikt frekar aftarlega. Þvílíka veislan fyrir okkur íslendinga. Þeir ollu engum vonbrigðum. Til að undirstrika frábæran árangur Benedikts að hann er með næst besta árangur í gæðingaskeiðinu á mótinu. Til hamingju strákar ! og Ísland.

Hér fyrir neðan eru stutt innslag frá fremsta fréttaritara þjóðarinnar og sprettirnir hjá Heimsmeisturunum okkar.

Gæðingaskeið – PP1 – Efstu 5

1 Elvar Þormarsson Fjalladís frá Fornusöndum 8.92
Heat 1 8.83 : 7.0 – 8.5 – 8.5 – 7.9 – 9.0
Heat 2 9.00 : 8.0 – 8.5 – 8.5 – 8.0 – 9.0

2 Steffi Svendsen Saga fra Teland 8.00
Heat 1 8.00 : 7.5 – 7.5 – 7.5 – 8.4 – 7.5
Heat 2 8.00 : 8.0 – 8.0 – 7.0 – 8.6 – 8.0

3 Vignir Jonasson Felix från Änghaga 7.79
Heat 1 7.50 : 4.0 – 7.5 – 8.0 – 8.0 – 5.5
Heat 2 7.75 : 6.0 – 7.5 – 8.0 – 8.1 – 5.5

4 Gudmundur Einarsson Draumur från Tängmark 7.63
Heat 1 7.58 : 6.5 – 7.0 – 8.0 – 8.6 – 7.0
Heat 2 8.00 : 7.5 – 8.0 – 7.5 – 8.5 – 7.5

5 Søren Agerskov Madsen Skinfaxi fra Lysholm 7.50
Heat 1 7.50 : 7.0 – 7.5 – 7.5 – 8.5 – 5.5
Heat 2 7.50 : 7.5 – 8.0 – 7.0 – 8.6 – 5.5

Gæðingaskeið – PP1 – Efstu 5 – Ungmennaflokkur
1 Benedikt Ólafsson Leira-Björk frá Naustum III 8.00
Heat 1 7.92 : 7.5 – 7.5 – 7.5 – 8.2 – 6.0
Heat 2 8.08 : 7.5 – 7.0 – 7.5 – 8.2 – 7.5

2 Dario Julita Rökkvi vom Schnorrenberg 6.71
Heat 1 6.58 : 6.0 – 6.5 – 6.0 – 8.8 – 5.0
Heat 2 6.83 : 7.0 – 6.5 – 6.5 – 8.6 – 4.0

3 Amelie Segerström Kopar frá Sunnuhvoli 6.58
Heat 1 6.67 : 6.5 – 7.0 – 6.5 – 9.3 – 6.5
Heat 2 6.50 : 6.0 – 6.0 – 6.5 – 9.3 – 7.0

4 Gerda-Eerika Viinanen Svala frá Minni-Borg 6.13
Heat 1 6.00 : 0.0 – 6.5 – 6.5 – 8.3 – 4.5
Heat 2 6.25 : 0.0 – 7.0 – 7.0 – 8.1 – 4.0

5 Lill Kirsten Gilja Loki fra Tyse 5.75
Heat 1 5.42 : 0.0 – 6.0 – 6.0 – 8.5 – 3.0
Heat 2 6.08 : 0.0 – 6.5 – 7.0 – 8.1 – 3.5

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link