Styrkur frá Votmúla fallinn

  • 7. júní 2011
  • Fréttir
Mikið áfall fyrir eigandann og hrossaræktina

Stóðhesturinn Styrkur frá Votmúla er fallinn. Aflífa varð hestinn eftir að hestakerra sem hann var á losnaði aftan úr jeppa skammt frá Ingólfshvoli í Ölfusi. Atvikið átti sér stað þegar Freyja Hilmarsdóttir, eigandi hestsins, var á heimleið frá kynbótasýningu á Mið-Fossum seint í gær. Annar stóðhestur sem var á kerrunni, Jósteinn frá Votmúla, virðist hafa sloppið ómeiddur.

Styrkur var 8 vetra, undan Sæ frá Bakkakoti og Sunnu frá Votmúla. Hann meiddist á unga aldri og það útheimti mikla þrautseigju og alúð að koma hestinum til fullrar heilsu. Það er því mikið áfall að svona skyldi fara loks þegar farið var að sjást til lands, enda hesturinn mikill gæðingur að upplagi. Hestablaðið vottar Freyju innilega samúð.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link