 Styttist í næstu keppni í Meistaradeildinni
								
												Styttist í næstu keppni í Meistaradeildinni					
					
				 
									  
																	Keppni hefst stundvíslega klukkan 19:00 þegar keppt verður í slaktaumatölti. Keppnin verður haldin í HorseDay höllinni, Ingólfshvoli og má gera ráð fyrir að fremstu hestar landsins mæti til leiks.
HRINGDU býður frítt í stúkuna, þannig að áhorfendur geta tryggt sér sæti og upplifað keppnina í einstakri stemningu á staðnum. Fyrir þá sem vilja gera kvöldið enn betra verður Veisluþjónusta Suðurlands með glæsilegt hlaðborð á staðnum, og gestir sem panta fyrir fram fá frátekið sæti á besta stað í stúkunni. Pantanir fara fram á Dineout.is. Húsið opnar klukkan 17:00
Fyrir þá sem komast ekki í höllina verður keppnin sýnd í beinni útsendingu á www.eidfaxitv.is þar sem hægt verður að fylgjast með keppninni ásamt áhugaverðum viðtölum þar sem kappkostað verður að senda stemninguna úr höllinni heim í stofu!
Steikarhlaðborð og frátekið sæti í stúkunni! -Verð 4.990kr.
Aðalréttir
- Fyllt kalkúna bringa
- Hægeldað og grillað lamb
Meðlæti
- Bakaðar kartöflur kryddaðar með hvítlauk og timíaN
- Ristað rótargrænmeti
- Sætkartöflusalat með döðlum og heslihnetum
- Perlubyggsalat með kryddjurtum og grilluðum paprikum
- Brokkolí- og trönuberjasalat
- Laufsalat fyrir ferskleika
- Sósur
- Rauðvínssósa og villisveppasósa
Einnig verða til sölu:
- 12” pizzur – Margarita – Pepperoni og rjómaostur – Skinka og ananas
- Kjúklingavængir og nachos með heitri ostasósu
- …og aðrar léttar veitingar fyrir gesti og gangandi.
Allir að mæta í HorseDay höllina á fimmtudaginn.
 Styttist í næstu keppni í Meistaradeildinni
								
												Styttist í næstu keppni í Meistaradeildinni					 
																							 
                 
             
                 
             Minningarorð um Ragnar Tómasson
                            	
                                                Minningarorð um Ragnar Tómasson                     
                 
             
                 
             
                 
             
                 
             
										 
                        
                 
                        
                 Opið er fyrir umsóknir í Hæfileikamótun LH
                                        	
                                                                     
                                Opið er fyrir umsóknir í Hæfileikamótun LH                            