Suðurlandsdeild Cintamani í hestaíþróttum
Það er með miklu stoltu sem við tilkynnum að aðalstyrktaraðili Suðurlandsdeildarinnar 2023 er Cintamani og kallast því deildin Suðurlandsdeild Cintamani í hestaíþróttum 2023. Magnús Benediktsson og Einar Karl Birgisson handsöluðu þetta á dögunum.
Það styttist í fysta mót deildarinnar en deildin hefst með keppni í Parafimi þann 7. mars n.k. Við hlökkum til að taka á móti ykkur í Rangárhöllinni en Suðurlandsdeildin verður einnig í beinni útsendingu á Alendis TV fyrir þá sem ekki eiga heimangengt.
Liðin sem taka þátt eru:
Lið Árbæjarhjáleigu / Hjarðartúns
Lið Black Crust Pizzeria
Lið Fiskars
Lið Hemlu / Hrímnis / Strandarhöfuðs
Lið Húsasmiðjunnar
Lið Kálfholts / Kerhólshesta / Sandhólaferja
Lið Krappa
Lið Múla Hrossarækt / Hestasál ehf.
Lið Nagla
Lið Nonnenmacher
Lið Syðri-Úlfsstaða / Traðarás
Lið Töltrider
Lið Vöðla / Snilldarverks / Sumarliðabæjar
Liðin verða kynnt nánar á næstu dögum.
Sjáumst í Rangárhöllinni í vetur!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH