Suðurlandsdeild

  • 23. október 2016
  • Fréttir
Ný liðakeppni í Rangárhöllinni

Ný deild í hestaíþróttum mun hefja göngu sína 31. janúar n.k. Suðurlandsdeildin Rangárhöllinni – Hellu. Deildin er samstarfsverkefni Rangárhallarinnar og Hestamannafélagsins Geysis. Deildin er liðakeppni þar sem keppa munu 10-12 lið. Hvert lið á að skipa tveimur atvinnumönnum og þremur minna vönum, tveir atvinnumenn og tveir minna vanir keppa í hvert sinn. Liðin safna stigum og stendur það lið uppi sem sigurvegari sem flest stig hlýtur eftir mótin fjögur.

Atvinnumenn / Minnavanir

 Miðað er við að atvinnumenn séu allir þeir sem hafa keppt í 1. Flokk eða meistaraflokk á keppnisárinu 2016. Minna vanir séu allir aðrir. Á hverjum viðburði keppa tveir atvinnumenn og tveir minnavanir. Minna vanir mega keppa í flokki atvinnumanna en ekki öfugt. Hver knapi má aðeins vera skráður í eitt lið. Stjórn Suðurlandsdeildarinnar þarf að samþykkja liðsskipan og getur gert athugasemdir sem þarf að bregðast við.Það verða fimm dómarar. Þrír knapar eru inná í einu. Að forkeppni lokinni verða tvenn A-úrslit. A-úrslit atvinnumanna og A-úrslit minna vanra nema í parafimi verða ein úrslit. Bæði úrslit gefa jafn mörg stig. Með þessu móti hafa allir jafn mikið vægi innan liðsins. Deildin verður haldin á þriðjudögum nema lokakvöldið, fimmgangur, er á föstudagskvöldi.Til þess að deildin fari af stað þarf þátttöku 8 liða. Ekki fleiri en 12 lið geta skráð sig til þátttöku í deildinni.Þátttökugjald fyrir hvert lið er 100.000 kr. Lið mun bera nafn viðkomandi bús, búa (ef fleiri en eitt bú er með hvert lið) eða styrktaraðila.

Innifalið í þátttökugjaldi hvers liðs eru tveir æfingatímar í Rangárhöllinni, fyrirfram ákveðnir af umsjónarmanni Rangárhallarinnar. Annar opinn en hinir einkatímar (40 mín) fyrir liðið fyrir hvern viðburð og skráning fjögurra knapa á viðburð.

 

 

Viðburðardagar:

31.janúar – fjórgangur

14.febrúar – parafimi

28.febrúar – tölt

17.mars – fimmgangur

Þau lið sem ætla að taka þátt þurfa að staðfesta þátttöku með tölvupósti á netfangið [email protected] með upplýsingum um knapa og liðstjóra. Fyrstu 12 lið sem skrá sig til leiks með tölvupósti fá þátttökurétt í deildinni. Skráningarfrestur er til 30. október.

Nánari upplýsingar á netfanginu [email protected], www.rangarhollin.is eða í s: 8662632.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link