Survive Iceland að hefjast
Survive Iceland eða Þolreið LH hefst þann 25. ágúst og mun standa yfir dagana 25-28. ágúst. Survive Iceland er liðakeppni þar sem hvert lið samanstendur af einum knapa, tveimur aðstoðarmönnum og þremur hestum. Á hverjum degi ríður hver knapi um 50-70 km. á tveimur hestum.
Hægt er að lesa sig til um fyrirkomulag keppninnar hér
Liðin sem keppa að þessu sinni eru sex og eru sem hér segir:
Lið Líflands – Hermann Árnason – Ísland
Lið Íslandshesta – Marjon Pasmooij – Holland
Lið Tamangur/Hestalands – Sami Browneller – USA
Lið Eldhesta – Sigurjón Bjarnason – Ísland
Lið Stálnausts – Karri Bruscotter – USA
Lið H. hestaferða – Emelie Sellberg – Svíþjóð
Hægt verður að fylgjast með gengi knapa á vef hugbúnaðarfyrirtækisins Samsýn: https://surviveiceland.samsyn.is/
Með því að ýta á Menu takkann er hægt að sjá hvar knapi er staddur, hversu langt hann er búinn að ríða og á hvaða hraða hann fer á.
Gott er að hafa í huga að þar sem er ekki símasamband dettur knapi út en kemur inn aftur um leið og símasamband er komið á aftur og skilar þá ritinn inn leiðinni sem knapi og hestur fóru á meðan símasamband datt út.
Eftir hvern dag verða færðar fréttir af stöðu knapa og liða á vefsíðu LH.
Fylgist einnig með á Facebook síðu LH og Instagram LH.
www.lhhestar.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH