Sveinn-Hervar á þau afkvæmi sem hæsta einkunn hlutu fyrir stökk

  • 26. desember 2021
  • Fréttir
Af þeim stóðhestum sem eiga 4 - 9 dæmd afkvæmi á árinu

Þegar öllum kynbótasýningum er lokið er hægt, með hjálp Worldfengs, að setjast niður og reikna út hin ýmsu meðaltöl hrossaræktendum til gagns og fróðleiks.

Eiðfaxi tekur nú fyrir eiginleika í hæfileikdómi og skoðum meðaltal einkunna afkvæma stóðhesta sem hafa skilað 4-9 afkvæmum í fullnaðardóm á árinu. Næst tökum við fyrir eiginleikana stökk og hægt stökk.

Alls eru 62 stóðhestar sem eiga 4-9 dæmd afkvæmi á árinu.

Afkvæmi Lords frá Vatnsleysu hlutu hæstu meðaleinkunina fyrir stökk eða 8,70. Alls á hann fimm dæmd afkvæmi á árinu en meðalaldur þeirra er 5,6 ár. Næstur í röðinni er Grímur frá Efsta-Seli með 8,64 í meðaleinkunn afkvæma fyrir stökk en hann á sjö sýnd afkvæmi á árinu og er meðalaldur þeirra 6,5 ár.

Fyrir hægt stökk voru það afkvæmi Sveins-Hervars frá Þúfu sem hlutu hæstu meðaleinkunnina eða 8,40. Sýnd voru fimm afkvæmi undan Sveini-Hervari á árinu og var meðalaldur þeirra 8,6 ár. Á eftir honum eru það afkvæmi Brags frá Ytra-Hóli en afkvæmi hans hlutu 8,38 í meðaleinkunn fyrir hægt stökk en sýnd voru fjögur afkvæmi undan honum á árinu og er meðalaldur þeirra 6,2

 

Listi yfir alla þá stóðhesta sem eiga 4 – 9 fullnaðardæmd afkvæmi á árinu raðað eftir meðaleinkunn fyrir stökk

Nafn Fjöldi afkvæma Meðalaldur Stökk Hægt stökk
Lord frá Vatnsleysu 5 5,6 8,70 7,80
Grímur frá Efsta-Seli 7 6,5 8,64 7,93
Jarl frá Miðkrika 6 6,1 8,42 7,83
Hraunar frá Hrosshaga 5 4,0 8,40 8,30
Oddi frá Hafsteinsstöðum 4 5,2 8,38 7,63
Sveinn-Hervar frá Þúfu 5 8,6 8,30 8,40
Vaki från Österåker 7 5,3 8,29 8,07
Straumur frá Feti 7 6,3 8,29 8,07
Prins från Knutshyttan 4 7,3 8,25 7,50
Viking från Österåker 8 5,1 8,25 8,25
Bragur frá Ytra-Hóli 4 6,2 8,25 8,38
Lexus frá Vatnsleysu 4 6,0 8,25 7,38
Kolskeggur frá Kjarnholtum 9 6,1 8,22 7,94
Óðinn vom Habichtswald 5 5,3 8,20 7,80
Lykill frá Blesastöðum 1A 6 6,2 8,17 7,67
Viktor fra Diisa 6 6,8 8,17 8,00
Bylur frá Breiðholti 4 5,8 8,13 7,88
Krókur frá Ytra-Dalsgerði 4 7,5 8,13 7,63
Framherji frá Flagbjarnarholti 4 6,3 8,13 8,00
Þróttur frá Hvalnesi 4 7,3 8,13 7,63
Gangster frá Árgerði 5 5,1 8,10 7,70
Mjölnir frá Hlemmiskeiði 5 7,2 8,10 7,60
Fróði frá Staðartungu 6 8,3 8,08 7,33
Oliver frá Kvistum 6 6,1 8,08 7,67
Barði frá Laugarbökkum 6 6,3 8,08 7,75
Hersir frá Lambanesi 8 5,8 8,06 7,56
Snillingur frá Íbishóli 4 6,3 8,00 7,38
Rammi frá Búlandi 4 9,0 8,00 7,75
Narri frá Vestri-Leirárgörðum 9 5,9 8,00 7,72
Forkur frá Breiðabólstað 6 4,3 8,00 7,50
Erill frá Einhamri 4 5,6 8,00 7,88
Garri frá Reykjavík 8 6,8 8,00 7,63
Stjörnustæll frá Dalvík 4 6,2 8,00 8,00
Kjerúlf frá Kollaleiru 7 6,7 8,00 7,86
Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum 4 4,3 8,00 7,88
Hágangur frá Narfastöðum 9 6,5 8,00 7,61
Gaumur frá Auðsholtshjáleigu 9 7,3 8,00 8,28
Glóðafeykir frá Halakoti 4 6,2 8,00 7,63
Sproti frá Innri-Skeljabrekku 5 5,8 7,90 7,60
Múli frá Bergi 5 5,0 7,90 7,90
Sólon frá Skáney 8 6,3 7,88 7,75
Þórálfur frá Prestsbæ 4 6,0 7,88 7,75
Mídas frá Kaldbak 4 7,8 7,88 7,50
Nói frá Jakobsgården 4 6,2 7,88 7,38
Atlas frá Hvoli 4 4,8 7,88 7,75
Bragi frá Kópavogi 4 7,0 7,88 8,13
Vilmundur frá Feti 6 5,7 7,83 7,58
Örn frá Efri-Gegnishólum 6 6,5 7,83 7,42
Gumi frá Dallandi 5 6,6 7,80 7,40
Fláki frá Blesastöðum 4 7,3 7,75 7,13
Lukku-Láki frá Stóra-Vatnsskarði 4 7,2 7,75 7,75
Aðall frá Nýjabæ 6 5,8 7,75 7,92
Hrímnir frá Ósi 6 6,1 7,75 8,00
Sær frá Bakkakoti 8 8,1 7,69 7,44
Aron frá Strandarhöfði 7 7,0 7,64 7,43
Markús frá Langholtsparti 4 5,8 7,63 7,50
Toppur frá Auðsholtshjáleigu 6 6,1 7,58 7,58
Kvistur frá Skagaströnd 4 8,0 7,50 7,13
Dagfari frá Sauðárkróki 4 6,7 7,38 7,25
Flipi från Österåker 4 8,4 7,13 7,13
Hrymur frá Hofi 4 10,3 7,13 7,38

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link