Svellkaldar konur á ísnum í kvöld

  • 16. mars 2013
  • Fréttir
Svellkaldar konur á ísnum í kvöld

„Svellkaldar konur fara fram í skautahöllinni í Laugardal í kvöld. Ljóst er að mikil stemning er fyrir mótinu, glæsilegir hestar eru skráðir til leiks og mikil sala hefur verið á aðgöngumiðum.  Á mótinu verður opin veitingasala og bar, svo engan ætti að þyrsta. 

Aðgöngumiðinn er á sama tíma happdrættismiði en til mikils er að vinna fyrir áhorfendur. Fjórir heppnir vinna folatoll  undir einn af eftirfarandi, heimsmethafann Spuna frá Vesturkoti, Andra frá Vatnsleysu, Brján frá Blesastöðum og Krók frá Ytra-Dalsgerði. Forsala aðgöngumiða er í Líflandi en einnig er hægt að kaupa miða á mótinu sjálfu, svo lengi sem ekki er uppselt. Miðaverð er 1.500 kr fyrsti miðinn, 2.500 kr tveir miðar og 3.000 kr þrir miðar. 

Sigurvegarinn í happdrættinu þarf að vera á staðnum til að taka á móti vinningnum.

Dagskrá kvöldsins er eftirfarandi:

17:30 Minna vanar – forkeppni
18:30 Meira vanar – forkeppni
19:45 Opinn flokkur – forkeppni

Matarhlé

21:00 B-úrslit
22:00 Dregið úr happadrætti og afhending styrkja til landsliðsins
22:15 A-úrslit
23:15 Mótsslit

Sjáumst á svellinu,“ segir í tilkynningu frá skipuleggjendum mótsins

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link