Svíþjóð hlaut æskulýðsverðlaun ársins 2022
FEIF veitir árlega verðlaun fyrir nýstárlegustu hugmyndirnar og árangursríkt frumkvæði í æskulýðsstarfi. Að þessu sinni er það Svíþjóð sem hlýtur verðlaunin.
„Einn af hápunktum starfsemi æskulýðsnefndarinnar var full dagskrá af alls konar hlutum sem hægt var að gera fyrir yngri kynslóðina á sænska meistaramótinu, hugmynd sem verður notuð á öðrum stórmótum. Þá var haldið málþing með það að leiðarljósi að kynna ungmennum fyrir kynbótasýningum og alla þá þætti sem fylgja þeim. Æskulýðsnefnd Svíþjóðar hefur einnig þróað nokkra nýjar keppnisflokka fyrir börn yngri en 12 ára – eitthvað sem gæti verið deild með öðrum löndum,“ segir í umsögn FEIF um æskulýðsstarfið í Svíðþjóð.
Margar góðar skýrslur bárust FEIF um æskulýðsstarfið í ýmsum aðildarlöndum en þær verða fljótlega aðgengilegar á heimasíðu FEIF.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH