Sýnikennsla á Flúðum

  • 19. nóvember 2019
  • Fréttir

Rósa Birna Þorvaldsdóttir reiðkennari og tamningakona

Reiðhöllin á Flúðum stendur fyrir sýnikennslu með Rósu Birnu Þorvaldsóttur.

Sýnikennslan fer fram fimmtudagskvöldið 21.nóvember. Húsið opnar 19.00 og kennsla hefst 19.30. Fólk hefur því tækifæri á að næra sig áður en kennslan hefst 🙂

Rósa Birna menntaður reiðkennari frá Hólaskóla og rekur tamningarstöð á Kílhrauni ásamt Þór Jónsteinssyni.

Rósa Birna ætlar að fara yfir hvað henni finnst gott að hafa í huga í byrjun vetrarþjálfunar. Hún leggur meðal annars áherslu á að hesturinn beiti líkama sínum rétt, sé mjúkur, þjáll og léttur á taum. Hún mætir með tvo hesta sem eru í þjálfun hjá henni en eru á mismunandi stigum í þjálfunarferlinu.

Aðgangseyrir er 3500 kr. Innifalið í verði er súpa og kaffi 🙂

Við hvetjum alla til þess að mæta og eiga góða kvöldstund saman! 🙂

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link