Sýnikennsla með Þórarni Eymundssyni
Sýnikennsla með Þórarni Eymundssyni verður í reiðhöllinni Svaðastöðum miðvikudagskvöldið 7. desember.
„Þórarinn þarf vart að kynna en þetta er frábært tækifæri til að fá innblástur fyrir veturinn,“ segir í tilkynningu fræðslunefndar Skagfirðings. Ágóðinn af sýnikennslunni rennur til reiðhallarinnar til að kaupa nýtt hljóðkerfi.