Sýnikennsla með Þorvaldi Árna
Hestamannafélagið Sörli og Þorvaldur Árni Þorvaldsson standa fyrir sýnikennslu á morgun, þriðjudaginn 7. október kl 19:00 að Sörlastöðum í Hafnarfirði. Verð kr. 1.000 og allir velkomnir.
Sýnikennslan markar upphaf námskeiðsins Þjálfað með Þorra þar sem Þorvaldur sýnir sínar aðferðir við þjálfun og uppbyggingu hrossa. Verkleg kennsla hefst síðan 14. október. Þrjú sæti eru enn laus á námskeiðið og áhugasamir eru beðnir um að skrá sig á http://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx?mode=add
Kær kveðja
Brynja Björk Garðarsdóttir, rekstrarstjóri
Hestamannafélaginu Sörla
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH