Sýning tamninganema á Hólum
Á laugardaginn fjölmenntu eigendur tamningatryppa að Hólum til að sjá árangur haustsins,..
en nemendur á öðru ári hafa í haust verið með 2 tryppi hvert í frumtamningu. Þessi tryppi koma víða að, en auk tryppa í eigu Hólaskóla senda margir hesteigendur hross í frumtamningu til nemenda sem vinna með þau undir leiðsögn reiðkennara.
Eigendur voru almennt ánægðir með afraksturinn. Sýndu nemendur tryppin fyrst inní reiðhöll og í framhaldi í reið úti.
Að sýningu lokinni tóku eigendur við tryppunum og fóru með til síns heima. Margir nemendur höfðu á orði að þetta væri svolítið sérkennileg stund og hálf erfitt að kveðja tryppin eftir nána samvinnu síðustu mánuði.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Landsliðsteymi Danmerkur fyrir árið 2027 klárt