RML Sýningin á Hellu byrjar með glæsibrag

  • 26. maí 2026
  • Fréttir
Sýnt er frá öllum kynbótasýningum á Íslandi á EiðfaxaTV.

Önnur kynbótasýning ársins hér á landi hófst með glæsibrag í dag þegar hver stórgæðingurinn á fætur öðrum mætti til dóms. Sýnt var frá herlegheitunum í beinni útsendingu á EiðfaxaTV  líkt og frá öllum sýningum á Íslandi og verða þær einnig aðgengilegar þar inni fyrir áskrifendur streymisveitunnar.

Þrjú hross hlutu yfir 8,80 fyrir hæfileika.

Agnar frá Margrétarhofi hlaut glæsilegan dóm þegar hann hlaut 8,71 fyrir sköpulag, 8,87 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,81 þar af 9,5 fyrir samstarfsvilja. 8,71 fyrir sköpulag, 8,87 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,81 þar af 9,5 fyrir samstarfsvilja. Agnar er 8.vetra gamall undan Ölni frá Akranesi og Garúnu frá Garðshorni á Þelamörk, ræktaður af og í eigu Margrétarhofs hf, sýnandi á honum var Þorgeir Ólafsson.

Næst hæstu hæfileikaeinkunina hlaut Kempa frá Kjarholtum 1 en hún hlaut fyrir hæfileika 8,85 og fyrir sköpulag 8,50 sem gerir 8,73 í aðaleinkunn. Hlaut hún m.a. 9,5 fyrir samstarfsvilja. Kempa er undan Heru frá Kjarnholtum I og Fork frá Breiðabólstað. Ræktandi er Magnús Einarsson en eigendur eru þau Eysteinn Leifsson, Flosi Ólafsson og Brynja Kristinsdóttir en hún sýndi einnig hryssuna.

Svartur frá Vöðlum hlaut 8,67 fyrir sköpulag, 8,81 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,76. Þar af 9,5 fyrir skeið og samstarfsvilja. Hann er sex vetra undan Kveik frá Stangarlæk 1 og Nótt frá Oddsstöðum I, ræktaður af og í eigu Ástríðar Lilju Guðjónsdóttur og Margeirs Þorgeirssonar. Guðmundur Björgvinsson sýndi Svart.

Þá hlaut Safír frá Laugardælum glæsilegan dóm með 8,83 fyrir sköpulag þar af 9,5 fyrir samræmi og 8,75 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,78.  Safír er sjö vetra gamall undan Þránni frá Flagbjarnarholti og Skart frá Laugardælum, ræktaður af Malin Widarsson en í eigu Önju Egger Meier og Fákshóla.

Glæsilegir klárhestar

Baldvin frá Margrétarhofi mætti í brautina eftir hádegi og var sýndur af Aðalheiði Önnu Guðjónsdótttur. Baldvin er undan Kveik frá Stangarlæk 1 og Glettu frá Margrétarhofi. Hann hlaut fyrir sköpulag 8,36 og fyrir hæfileika 8,66 sem gerir 8,56 í aðaleinkunn. Hlaut hann m.a 9,5 fyrir tölt, brokk, samstarfsvilja og fegurð í reið.

Þá hlaut Fleygur frá Geitaskarði 9,5 fyrir brokk og samstarfsvilja, Börkur frá Skammalæk 9,5 fyrir brokk og Viktor frá Hamarsey 9,5 fyrir fet, svo dæmi séu tekinn um aðra úrvalsgripi.

Bein útsending er á EiðfaxaTV.

Sýningin heldur áfram á morgun og verður í beinni útsendingu á EiðfaxaTV  líkt og allar kynbótasýningar á Íslandi og verða þær einnig aðgengilegar þar inni fyrir áskrifendur streymisveitunnar.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link