Takk fyrir samstarfið
Það var í febrúar 2014 sem ég tók við embætti forseta FEIF, alþjóðasamtaka Íslandshestafélaga. Þá hafði ég verið í stjórninni í 3 ár sem varaforseti og tekið þátt í störfum stjórnarinnar en þar áður verið í stjórn Landssambands hestamannafélaga frá því 2008. Nú í febrúar n.k. læt ég af embætti forseta FEIF, sáttur við allt það góða starf sem ég hef tekið þátt í að vinna að í þágu hestamanna og hestamennsku á íslenskum hestum.
Þessi tími hefur verið viðburðaríkur, lærdómsríkur og ekki síst ánægjulegur því að ég hef notið þeirra forréttinda að kynnast svo mörgu skemmtilegu og áhugaverðu fólki sem hefur brennandi og óbilandi áhuga á hestum og hestamennsku. Það er í rauninni ótrúlegt hversu margir hafa tekið þátt í ævintýrinu um íslenska hestinn vítt og breitt um heiminn. Allt frá því að FEIF var stofnað árið 1969 hefur verið unnið markvisst að því að greiða götu Íslandshestamennskunnar og lyfta henni á hærra plan. Búið er að þróa keppnisgreinar, dómskerfi, menntun, dómararéttindi, ræktunarmarkmið, dómskerfi fyrir kynbótahross, vinna að útbreiðslumálum, æskulýðsmálum og síðast en ekki síst ýmiss konar velferðarmálum hesta. Með þessu starfi hafa FEIF og hestamannafélögin í aðildarlöndunum skipað hestamennskunni á íslenskum hestum verðugan sess á alþjóðlegum vettvangi hestaíþrótta. Þá verður líka að minna á að upprunaættbók íslenska hestsins sem varðveitt er í gegnum gagnagrunninn WorldFeng er einstök á heimsvísu.
Þessi árangur kemur ekki af sjálfu sér; hann er afrakstur óeigingjarns starfs ótal karla og kvenna. Þessu starfi þarf að halda áfram og móta áherslurnar í starfinu á grundvelli þess sem er efst á baugi hverju sinni. Að mínu mati eru það velferðarmál hesta og samfélagslegur sáttmáli um það hvernig við stöndum að því að rækta þá og nota sem er næsta stóra verkefnið. Við verðum að leita þekkingar og vinna úr fyrirliggjandi upplýsingum um hestana okkar með það að markmiði að tryggja velferð þeirra og sátt um það hvernig hestamennska verður stunduð til framtíðar. Í vaxandi mæli er farið að skora á hólm viðteknar venjur varðandi dýrahald. Heimspekilegar vangaveltur um rétt manna til að nota dýr í leik og starfi eru staðreynd sem við getum ekki horft fram hjá. Ég tel mikilvægt að við hestamenn tökum forystu í umræðu um málefnið fremur en að standa óundirbúin frammi fyrir þessum áskorunum síðar meir.
Að lokum vil ég þakka öllu því góða fólki sem ég hef kynnst fyrir samstarfið að félagsmálum hestamanna á umliðnum árum og vona að þeir sem nú taka við kyndlinum eigi eftir að eiga jafn áhugavert og skemmtileg samstarf og ég hef átt við hestamenn.
Gunnar Sturluson hrossabóndi og forseti FEIF
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH