Taktu þátt í ljósmyndasamkeppninni 2023

  • 20. febrúar 2023
  • Tilkynning

Mynd: Sonja Riethig

FEIF og IPZV hafa staðið fyrir ljósmyndasamkeppni undanfarið ár og verður LH ásamt íslandshestasamtökunum í Ungverjalandi og Kanada samstarfsaðilar keppninnar í ár.

Eins og í fyrra verða fjögur mismunandi þemu yfir árið og fyrsta þemað er „Æfingin skapar meistarann“.

Sömu reglur gilda en þær eru:

  • Myndirnar verða að vera í Landscape
  • Senda má hámark 3 myndir
  • Myndirnar verða að innihalda íslenska hestinn
  • Myndin verður að vera tekin af þér eða fjölskyldu eða vinum. Myndir frá atvinnuljósmyndurum eru ekki samþykktar.
  • Skylda er að vera með hjálm ef knapi er á baki á myndinni.
  • Vinsamlegast setjið inn heimilisfang svo hægt sé að senda sigurvegara keppninnar vinninginn

Alþjóðleg dómnefnd velur bestu myndirnar og þær þrjár bestu verða síðan valdar til kosningar á netinu og þær birtar í dagatali FEIF 2024.

Vinsamlegast sendið myndirnar á [email protected]

Síðasti dagur til að senda inn mynd er 1. apríl 2023.

 

 

www.lhhestar.is

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link