Talið niður í Fákaflugið
Fákaflug verður haldið á Vindheimamelum í Skagafirðið dagana 30.júlí – 2.ágúst n.k. Þar verður keppt í gæðingakeppni, kappreiðum og tölti. Peningaverðlaun verða í tölti og 100m skeiði. Í dag mánudag, er síðasti skráningardagur og skulu skráningar berast á netfangið [email protected]. Skráningargjöld eru kr. 1000 og skulu greiðast inná: 0310-26-1630, kt. 520705-1630.
Auk spennandi keppni verður skemmtanahald öflugt á Vindheimamelum um næstu helgi. Það verða böll öll kvöld, veitingasala, barnagarður, sölubásar og trúbadorar.
Það er ljóst að miklu verður tjaldað til á Fákaflugi til að gera helgina sem eftirminnilegasta fyrir gesti og þátttakendur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH