Tekið til kostanna – Skemmtileg og fjölbreytt sýning – myndir

  • 2. maí 2011
  • Fréttir
Tekið til kostanna – Skemmtileg og fjölbreytt sýning - myndir

Svaðastaðahöllin var stútfull af fólki á laugardagskvöld þegar hin árlega stórsýning Tekið til kostanna fór fram. Stemmningin á pöllunum var góð og létt var yfir mönnum og hestum. Í bland voru atriðin hátíðleg, skemmtileg og frumleg. Mikið af góðum hrossum og innanum algjörir toppar.

Þannig var mjög hátíðleg stemmning í salnum þegar forsvarsmenn reiðhallarinnar kölluðu Svein Guðmundsson fram á gólfið og veittu honum viðurkenningu fyrir sitt framlag til reiðhallarinnar Svaðastaða. En Sveinn átti mikinn þátt í því að koma höllinni á koppinn og hefur síðan alltaf lagt starfseminni þar mikið lið. Þá var kynbótaknapinn knái, Bjarni Jónasson heiðraður en hann hampar nú titlinum Kynbótaknapi ársins. 

Boðið var upp á tvö glæsileg munsturreiðaratriði. Húnvetnsku Dívurnar hafa slegið í gegn árlega á þessari sýningu og voru þær frábærar að vanda. Eyfirsku gæsirnar áttu einnig stórleik með mögnuðum útfærslum á sinni sýningu. Bæði þessi atriði voru greinilega vel æfð, búningar glæsilegir og konurnar flugríðandi.

Það var ekki laust við að fólk ætlaði að rifna úr hlátri yfir ótrúlega velheppnuðu knapaeftirhermu atriði. Hermt var eftir fjölda af norðlenskum knöpum og því lýst af Eysteini Leifssyni af alkunnri snilld. Hrossunum frá Guðmundi Hermannssyni á Fjalli voru gerð góð skil með mjög vel heppnuðu atriði. Þar komu fram fjögur afkvæmi Orions frá Litla-Bergi undan hryssum úr ræktun Guðmundar. Hrossin fóru mjög vel í reið hjá Ingimari Jónssyni og hans liði frá Flugumýri og vakti Vera frá Fjalli sérstaka athygli hjá kornungri heimasætunni á Flugumýri. Undir atriðinu var lifandi tónlist þar sem hið efnilega tónskáld, Ingimar Jónsson, flutti eigið lag og texta tileinkað atriðinu.

Á sýningunni var unglingastarfi og reiðkennslu vetrarins gerð góð skil, þá fór fram verðlauna afhending kynbótahrossa og lauk þar með fyrstu kynbótasýningu ársins. Efsti hestur sýningarinnar var Þeyr frá Prestsbæ. Fimleikar voru sýndir á hesti sem var skemmtileg tilbreyting að sjá. Frammistaða fimleikakonunnar vakti athygli og ekki síst þegar tilkynnt var að hún væri komin 5 mánuði á leið. Þá sýndi Þorsteinn Björnsson reiðkennari á Hólum fima reið þegar hann kynnti hina nýju keppnisgrein “Hestamennska FT” þar sem allt er lögð er áhersla á grundvallar atriðin í þjálfun og reiðmennsku. Mjög snyrtilegt og vel framsett atrið var hjá þeim Tryggva á Mýri ásamat syni og tengdadóttir en þau Guðumundur Tryggvason og Helga Árnadóttir sátu tvær gráskjóttar glæsihryssur úr eigin ræktun.
Í spennandi skeiðkappreiðum bar Ás frá Hvoli ásamt Árna Birni Pálssyni sigur úr bítum. Annar var Kóngur frá Lækjarmóti og Elvar Einarsson og þriðja var Þúsöld frá Hólum og Fanney Dögg Indriðadóttir.

Frá Flugumýri II komu þrír gæðingar á fimmta vetri. Tvær dætur Leiknis frá Vakursstöðum, önnur undan Sif og hin undan Kolskör og með þeim var hinn efnilegi stóðhestur Hrannar, sem er sonur Krafts frá Bringu og Hendingar frá Flugumýri. Grettir frá Grafarkoti var sýndur ásamt dóttur sinni á fimmta vetri og vakti þetta fasmikla par mikla athygli. Þá voru sýndar tvær dætur Sendingar frá Enni í Viðvíkursveit og átti Fura frá Enni sérstaklega góða sýningu. Ágætir hestar komu fram í atriðum frá Björgum í Eyjafirði og Garðakoti í Skagafirði.

Sýningin fékk góða heimsókn frá Hvoli í Ölfusi. Sýndir voru þrír fyrstuverðlauna stóðhestar sem allir eiga ættir sínar að rekja til Víðidals í Skagafirði. Þar á meðal var Þokkasonurinn Gjafar sem kom glæsilega fyrir. Þá sýndi Þorvaldur Árni klárhestinn Smyril frá Hrísum sem vakti mikla athygli fyrir gríðarlegan fótaburð og fas. Loka atriði kvöldsins var einnig reitt fram úr gæðingakistunni á Hvoli en þar sýndi Þorvaldur Árni stórstirnið Kiljan frá Steinnesi. Önnur góð heimsókn kom frá Mosfellsbæ þar sem sýndir voru fimm flottir hestar úr eigu Eysteins Leifssonar og Leifs Jóhannessonar. 

Í hefðbundnum hópatriðum alhliðahesta og klárhesta komu fram ýmsar stjörnur bæði gamlar og nýjar má þar nefna Krumma frá Egilsá, Punkt frá Varmalæk, Svölu frá Garði, Formúlu frá Vatnsleysu, Hafrúnu frá Vatnsleysu, Heklu frá Tunguhálsi II og Lukka frá Kálfsstöðum. Þá áttu þeir góða sýningu stóðhestarnir Hrymur frá Hofi, Vafi frá Ysta-Mói, Álfgrímur frá Gullberastöðum og Bruni frá Skjólbrekku. Var það mál manna að stjarna sýningarinnar og það sem trúlega verður lengi í minnum haft var stórkostleg sýning Egils Þórarinssonar á stóðhestinum Fróða frá Staðartungu. 

//Eyþór Einarsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link