Það nýjasta af „Smitandi hósta“-

  • 1. nóvember 2010
  • Fréttir
Það nýjasta af "Smitandi hósta"-

Eiðfaxa bárust fréttir þess efnis að búið væri að kortleggja nánar smitið sem herjað hefur á hrossin…

hér á landi frá því í vor. Við höfðum samband við Eggert Gunnarsson dýralækni á Keldum:
„Við höfum fengið staðfestingu á því að bakteríustofn sá sem hefur herjað á hrossin okkar er nýr af nálinni hér, en þekktur erlendis og er alger samsvörun með honum og smiti sem fannst í hrossum í Svíþjóð árið 2008. Þessi stofn finnst í öllum sýnum sem hafa verið tekin úr veikum hrossum og vð krufningu. Hinsvegar er þessi stofn hvergi sjáanlegur í eldri sýnum sem við eigum hér frá fyrri tíð og er það skýringin á því hversvegna þetta varð sá faraldur sem raun bar vitni, hross hér á landi höfðu aldrei séð bakteríu af þessum stofni áður og voru þess vegna berskjölduð.
Þessi vitneskja segir okkur það að smitið hefur borist hingað utan úr Evrópu en engin leið er að segja til um það hvernig það hefur borist. Mögulega með einhverju ferðafólki, mögulega með einhverjum farfuglum, ekki gott að segja“.
Verður þetta viðverandi vandamál hjá okkur?
„Reikna má með því að folöld muni í framtíðinni geta sýkst af þessari bakteríu en góðu fréttirnar eru hinsvegar þær að við sjáum möguleika á að búa til bóluefni sem við munum geta notað til að fyrirbyggja veikindi“ sagði Eggert að lokum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link