Landsmót 2024 „Það var ekki erfitt að smita hana af skeiðbakteríunni“

  • 7. júlí 2022
  • Fréttir
Skeiðsjúk feðgin í gæðingaskeiðinu.

Það var gaman að sjá feðginin Jóhann Kristinn Ragnarsson og Herdísi Björgu Jóhannsdóttur í gæðingaskeiðinu. Jóhann endaði í öðru sæti og Herdísi í því sjötta en til gamans má geta að Herdís er einungis í unglingaflokki.

„Ég smitaði hana kannski örlítið af skeiðbakteríunni. Það var ekki erfitt samt,“ segir Jóhann sem er afar stoltur af dóttur sinni sem einnig er búin að tryggja sér sæti í b úrslitum í unglingaflokki á Snillingi frá Sólheimum. „Skemmtilegasta við skeiðið er hraðinn. Pabbi setti þá reglu að ég fengi ekki að byrja leggja nema ég væri búin að fá 6,5 út fyrir hraðabreytingar og síðan þegar ég fékk 6,5 út fyrir hraðabreytingar þá breytti hann því í 7,0,“ segir Herdís og hlær en Jói bætir við að honum hafi fundist hún full lítil þegar hún náði þessum árangri. „Hún var byrjuð að biðja mig um að fá að leggja þegar hún var 6 ára. Ég varð að finna einhverja afsökun til að seinka þessu aðeins,“ segir Jóhann og brosir.

Þetta var í fyrsta sinn sem feðginin voru að keppa á móti hvoru öðru og höfðu þau bæði mjög gaman af. Það er eflaust ekki langt þangað til að Herdís fari að taka fram út pabba sínum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link