Þakka foreldrum sínum og hvor annarri árangurinn

  • 16. júlí 2021
  • Fréttir

Hjördís Halla (t.v.) heldur í Flipa og Þórgunnur (t.h.) heldur í Hnjúk hlaðnar verðlaunum eftir fimikeppni

Systurnar Þórgunnur og Hjördís Halla Þórarinsdætur unnu frábært afrek í kvöld á Íslandsmóti yngri flokka í hestaíþróttum þegar þær unnu hvorn sinn flokkinn í fimikeppni. Þórgunnur stóð efst í unglingaflokki á Hnjúki frá Saurbæ og Hjördís Halla í barnaflokki á Flipa frá Bergsstöðum Vatnsnesi.

En hvernig líður þeim systrum núna þegar þær eru orðnar Íslandsmeistarar í fimi? „Mér líður bara rosalega vel það er mjög skemmtilegt að vinna sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil og þetta var fyrsta skipti Hnjúks í fimi og í raun fyrsta Íslandsmótið hans þannig að það er mjög skemmtilegt að ná þessu strax“ Segir Þórgunnur og Hjördís Halla bætir við. „Mér líður alveg ótrúlega vel, þetta er fyrsta Íslandsmótið mitt og ég er strax orðin Íslandsmeistari þannig ég get ekki annað en brosað.“

En hverju þakka þær sigurinn? „Við þökkum foreldrum okkar fyrir alla hjálpina og ekki síður hestunum. Svo að sjálfsögðu hvor annarri en við erum samrýmdar í hestamennskunni og hjálpumst að.“

Einbeiting og æfing

Í fimikeppni reynir á nákvæmni knapans og því mikilvægt að koma vel undirbúinn til leiks, en hvernig er best að undirbúa sig? Þórgunnur er fyrri til svars. „Það er fyrst og fremst að passa að hafa hestinn sáttan og rólegan svo maður geti leyst allt það sem maður á að framkvæma. Svo er einnig mikilvægt að undirbúa sig vel og muna atriðið sitt og hugsa á undan hestinum svo maður sé með nákvæmar ábendingar. Maður er ekkert alltaf endilega að æfa fimi heldur er þetta allt saman partur af þjálfuninni að geta framkvæmt góðar gangskiptingar og vera með allt undir stjórn.“ Hjördís er einnig með svör á reiðum höndum. „Það er líka mikilvægt að fara yfir atriðið í huganum og muna reiðleiðirnar sínar og vera einbeitt.“

En að því sögðu, gekk allt eins og til var ætlast í keppninni? „Já þetta gekk allt upp hjá okkur auðvitað er alltaf hægt að bæta smáatriði en heildarmyndin gekk upp. Við vorum því mjög sáttar við hvernig til tókst.“

Þá er eingöngu ein spurning eftir, hvernig á að fagna? „Það er þetta klassíska, fara í ísbúðina og fá sér ís. Svo þurfum við bara að fara að einbeita okkur fyrir næstur greinar sem eru á morgun og hinn.“ 

Eiðfaxi þakkar þessum metnaðarfullu og prúðu systrum fyrir spjallið og óskar þeim til hamingju með Íslandsmeistaratitlana og óskar þeim áframhaldandi velgengni á Íslandsmóti barna og unglinga.

 

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link