Þarft ekki að bíða í hliðinu

  • 23. júní 2016
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Olís afhendir armbönd í Borgarnesi og Norðlingaholti.

Olís er samstarfsaðili Landsmóts hestamanna og mun afhenda armbönd á tveimur af stöðvum sínum, í Borgarnesi og Norðlingaholti, gegn framvísun gilds miða frá Tix miðasölu. 

Hægt verður að viku-, helgar- og unglingamiða. Armbönd fyrir börn 13 ára og yngri eru afhent í hliði. Kaupendum rafmagnsstæða er bent á að hafa þann miða/kvittun ávallt við höndina á meðan móti stendur. 

ATHUGIÐ: Armböndin eru EKKI seld á stöðvum Olís, aðeins afhent gegn miða frá Tix miðasölu. 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link