„Þarna finnst mér forystan algerlega bregðast“

  • 2. apríl 2023
  • Fréttir
Viðtal við Herbert Ólason, Kóka.

Herbert Ólason eða Kóka þekkja allir hestamenn, hann hefur um 40 ára skeið verið einn af ötulustu fulltrúum íslenska hestsins á meginlandinu, rekið þar hrossabú eða hof eins og hestamenn á meginlandinu kalla það, verið ötull í sölu og markaðsmálum íslenska hestsins, stundað ræktun, keppni og í raun allt sem viðkemur hestamennskunni. Síðustu áratugi hefur Kóki byggt upp fyrirtækið Top Reiter og líklega eru ekki mörg hesthús í dag þar sem ekki finnst eitthvað af vörum þess fyrirtækis.

Í byrjun árs var Kóki staddur hér á landi og Eiðfaxi tók við hann spjall um hestamennskuna í Þýskalandi, stöðu hestsins í dag, framtíðarhorfur og ýmislegt fleira. Kóki er ekki vanur að liggja á skoðunum sínum og segir hlutina hreint út eins og þeir líta út frá hans sjónarhorni. Viðtalið mun birtast á vef Eiðfaxa í nokkrum hlutum á næstunni ég hér kemur annar hluti viðtalsins, en fyrsta hlutann er hægt að lesa HÉR og seinni HÉR

En hvað finnst þér um stöðu íþróttadóma?

Ég er kannski full grófur en ég vil fækka dómurum í íþróttakeppninni niður í þrjá, og ég vil fórna kannski einu ári í að fiska út bestu dómarana. Það eru örugglega ekki margir sammála mér í því en þá fengjum við út grúbbu sem harmoneraði saman. Ég geng svo langt að ég vil fara að breyta íþróttakeppninni aðeins, ég er alveg viss, en kannski einn um það líka en af hverju sjáum við oft einkunnir uppá 8,5-9 í tölti en aldrei í fjór- og fimmgangi ? Ég held að það mundi hjálpa okkur og breyta þessum greinum þannig að þú átt að ríða í ákveðinni röð í forkeppni bara eins og í úrslitum. Þetta mundi auðvelda dómurum, þeir hafa síðasta hestinn mjög í minninu, þetta er bara hugmynd sem ég hef rætt við nokkra dómara, sumum finnst þetta gott en öðrum ekki. En það er alveg komin tími til þess að ræða þetta. 

Hvernig finnst þér íþróttadómarar erlendis standa sig miðað við íslenska dómara, heldur þú að keppandi með ákveðna sýningu hér heima væri að fá svipaða tölu úti ?

Við erum með miklu betri dómara hér heima á Íslandi, við erum með allt aðra hestamennsku hér, keyrðu til dæmis bara hér upp í Sprett eða Fák, og sjáðu það sem er í gangi þar bæði hvað varðar hesthúsin og hrossin.  Það er bara svo mikið í gangi hér allt árið, við eigum svo gígantískt og rosalega mikið af flottu fólki í hestmennskunni, glæsilegu fólki á öllum aldri. 

Finnst þér breiddin vera að aukast í reiðmennsku hér á Íslandi ?

Alveg rosalega, það er mörgu að þakka, meðal annars Hólaskóla og þeim frábæru kennurum sem hafa verið þar og svo bara hestafólki. Mér finnst svolítið röng stefna kannski sem þeir hafa verið með á Hólum að þeir eru hættir að fella nemendur, ég veit ekki af hverju það er en ég heyrði það.  Í Þýskalandi erum við með 900 eða 1000 A,B og C trainera en það er samt virkilega erfitt að fá einhvern sem maður er virkilega ánægður með. Kerfið í Þýskalandi er samt þannig að það er erfiðara að verða trainer A heldur en doktor í lögfræði. Þetta er þvílíkt þyrnum stráður vegur, þar mætti gera þetta auðveldara og effektívara. Ég ætla nú ekki að fara að segja Þjóðverjum hvernig á að gera þetta en það er mjög skrýtið ef þú ert að taka próf og getur svo fengið lánaðan hest sem er búinn að fara yfir 8 fjórgangi, sem kann prógrammið og taka próf á hann. Ef ég ætla að taka próf á píanó þá fæ ég ekki Askenasy til að spila fyrir mig. 

Við getum svo sem diskúterað þetta endalaust en málið er að þetta er orðið allt svo þungt í vöfum. Nú eru að verða kaflaskipti hjá FEIF sem ég kvíði mjög mikið fyrir. Við höfum átt alveg frábæran mann þar sem Gunnar Sturluson er, hann er hestamaður, hann er ræktandi og hestamaður. Hann veit um hvað hestamennskan snýst og verið mjög farsæll í sínu starfi, ég sé ekki nokkurn einasta mann innan FEIF sem getur tekið við af honum í dag. Ekki einn einasta. Það þarf að vanda mjög mikið valið í þessu því það er svo margt sem getur komið uppá og er komið í deigluna, til dæmis þetta að það megi ekki vera meira en 80 kg. knapi á íslenskum hesti. Þetta er bara frasinn í dag í öllu sem þú ert að taka þátt í. Hvernig þú talar, hvert þú horfir og hvernig þú horfir. Það má ekki gera neitt og það endar með því að við megum ekki nota hestinn sem leikfang. Þetta er lifandi dýr og hann verður að fá að vera einn úti í náttúrunni. Við erum að fara inná þetta ofurgræna svið, við erum öll græn og viljum öll lifa í hreinni heimi og gera allt sem við getum til þess að bæta hann en þessi umræða er komin langt út fyrir það. 

Svo eru menn orðið dæmdir af lýðnum sem er orðin að dómara, menn sem eru saklausir eru teknir af lífi, og ég ætla að koma hér inná mál sem okkur kemur við, mál Jóa Skúla. Ég saknaði þess þegar Sigurbjörn Bárðarson var að kynna landsliðið með sínum mönnum, þeir tilkynna frábært lið, flott lið og allt það að hann skildi ekki hafa tilkynnt að því miður vanti mann sem vissulega hafi girt upp um okkur á erfiðum tímum, sigursælasta mann allra tíma á heimseistaramótum og margfaldan heimsmeistara, að minnsta kosti til að þakka honum fyrir. Þarna finnst mér forystan algerlega bregðast. út af hverju hafa þeir tekið þetta svona upp hjá LH með 30 ára gamalt mál sem er löngu búið og búið að taka sína refsingu? Við getum horft á þetta mál frá öllum hliðum en við megum ekki láta mannvonskuna taka yfirhöndina. Við verðum að vera auðmjúk og reyna að standa saman.

Hvað heldur þú að verði framhaldið á því máli ?

Ég veit það ekki, en það varð uppákoma síðasta sumar á Mið-Evrópumótinu sem ég hélt á Hrafnsholti. Það var alveg frábært mót og allir töluðu um hvað það hefði verið flott. Þegar mér er úthlutað að halda mótið, en það er Mið-Evrópumóts ráð sem sér um það, svipað og Norðurlandamótið þá fæ ég skjal sem í stendur hvað ég eigi að gera, ein greinin í þessu skjali segir að ég megi bjóða þremur knöpum hvaðan sem er til að taka þátt.  Nú ég býð Eyrúnu Ýr, Teiti Árna og Jóa Skúla. Þau eru komin á svæðið og þá fer allt í einu einhver hrina af stað með að þau megi alls ekki keppa á mótinu. Ég hélt þessu auðvitað til streitu enda var það í samningnum að ég mætti bjóða knöpum, þá fór af stað undirskriftalisti hjá liðunum þar sem liðsstjórarnir skrifuðu undir að þessir knapar mættu ekki koma, sérstaklega Jói, þau minntust aldrei á hina. Stjórn mótsins fjallar svo um þetta og ákveður að þessi grein skuli strikuð út úr samningnum, það er að segja að mótshaldari megi bjóða þremur knöpum að taka þátt. Svo ég var gerður ómarktækur með þetta og hent útí horn. 

Þetta var alveg rosalega leiðinlegt, en ég var bara búinn að fjárfesta svo mikið í mótinu svo það var ekki um annað að ræða en halda það, enda þegar þetta gerist var fólk farið að koma á staðinn. En mér leið ekki eins vel með þetta mót eins og mér hefði liðið. 

Er hann samningbundin þér, Jói ?

Jói var sennilega fyrsti knapinn sem Top Reiter byrjaði að styðja við fyrir um þrjátíu árum síðan og í kjölfarið hafa fjölmargir frábærir knapar bæst í þann hóp.   Top Reiter hefur fjárfest mikið í því að styðja við bakið á mörgum af okkar bestu knöpum en við höfum þó aldrei gert skriflegan samning við einn eða neinn. Það er allt bara munnlegt og engar kvaðir sem við setjum á þá þó þeir taki þátt í auglýsingum fyrir okkur ef við biðjum þau. Við erum að styðja þá út af því að þetta er gott fólk og flottir reiðmenn og auglýsing fyrir hestamennskuna í heild. Nákvæmlega sama og við erum að gera á Heimsmeistaramótum, við höfum verið stórir styrktaraðilar Heimsmeistaramóta síðustu ár og erum stolt af því.

Veistu hvernig undirbúningur gengur fyrir næsta Heimsmeistaramót og hvernig líst þér á það?

Það verður mjög flott, þetta er sérstök grúppa sem þarna er, og það eru tveir aðilar sem hefur í seinni tíð tekist að gera almennilegt mót, það eru Þjóðverjar og Hollendingar. Hin löndin hafa brugðist, það er mjög erfitt til dæmis að halda Heimsmeistaramót í landi sem er ekki í EU (Evrópusambandinu). Að þurfa að tolla inní landið hvert einasta stykki sem þú kemur með og ætlar að selja er alveg svakalega mikil vinna. 

Það var grúppa manna sem í voru Þjóðverjar, Íslendingar og Danir sem sóttu um að halda mótið 2025. Við gerðum rosalega flott consept, vorum búin að fá eitt flottasta útisvæði í Þýskalandi sem er á milli Frankfurt og Mannheim, á þessu svæði er margoft búið að halda heimsmeistarakeppnir í dressur og hindrunastökki og fleiru. Þetta er fullkomið svæði sem er búið til fyrir svona útiskemmtanir, það koma þarna 800 þúsund manns á viku á stæðstu skemmtanirnar. Það er allt til alls þarna, allt til alls. Það eru hesthús fyrir 180 hesta, hallir fyrir þúsundir manna, klósettaðstaða og allt. Alveg rosalega flott og í miðju Þýskalandi. Fólk flýgur á Frankfurt og er 20 mín. að keyra á  svæðið. Þegar upp er staðið hefði verið minimal kostnaður að halda Heismeistaramót þarna og ég er viss um að við hefðum fengið svona 20 þúsund manns þangað, að minnsta kosti. Við sóttum um en það var ekki talað við okkur, ekki eitt einasta orð. Svisslendingar komu með umsókn, hún var bara mynd af túni, og ekkert á túninu. 

Okkur var svo sagt að einvherjir úr stjórn FEIF hefðu farið og skoðað svæðið sem við buðum fram og það hefði þótt flott en vantaði útreiðarleiðir, ég meina voru útreiðarleiðir í Berlín eða hafa þær yfirleitt verið til staðar, það eru reyndar ágætar útreiðarleiðir á þessu svæði en þeir gleymdu bara að skoða þær. Svo fórum við að spyrjast fyrir hvort það hafi komið þarna sendinefnd og skoðað svæðið og það kannaðist enginn við það, þannig að sennilega hafa þeir aldrei farið að líta á það. Auðvitað er þetta politík, en þarna var svæði sem maður varð alveg dolfallin yfir þegar maður sá það, og þetta svæði var þannig að það hefði verið hægt að búa til alveg hrikalega flotta stemmingu, þvílíkt og annað eins hef ég aldrei séð.  Dómaraturninn er fimm hæða hús og ofan á því er restaurant, allt í function og spikk og span, við litum inná klósetthúsin en það er fullt af þeim þarna og það var bara eins og þau hefðu verið byggð í gær, glansandi flott. Þetta svæði er í raun einstakt í Þýskalandi, þarna er skrifstofuhúsnæði og starfsfólk að vinna á svæðinu, sporvagnar stoppa bara fyrir utan, þetta er allt í gangi. Þarna eru hallir þar sem haldnar eru sýningar og tónleikar sem taka fleiri þúsund manns í sæti, 7-8000 manns í sæti.  Leigan var mjög sanngjörn svo allur kostnaður við þetta hefði verið í lágmarki miðað við það sem ég þekki áður eins og til dæmis í Berlín þar sem þurfti að byggja upp vellina og allt það. 

Og ætlið þið þá að sækja um mótið 2027?

Nei nei við hættum að eiga við FEIF, við lögðum alveg svakalega vinnu í þetta og nennum því ekki aftur. 

 Það er endaust hægt að tala um hluti sem við gætum gert betur, og við megum ekki lenda í því að vera með einhvern klíkuskap og pólitík í öllu. 

Það var haldið alþjóðlegt dómarapróf á Kronshof í fyrra og það getur engin sagt mér annað en að það hafi verið eitthvað að þar. Það voru 23 sem tóku þátt í því, þar á meðal strákar frá Íslandi sem voru búnir að vera að dæma árum saman, en það féllu allir. Það er eitthvað að, ég ætla ekki að segja frá því hér hverjir prófdómararnir voru en það er eitthvað að. 

Ef að þú mundir ráða hestaheiminum í tvo daga, hvað mundir þú gera, hverju mundir þú breyta?

Ég mundi reyna að búa til úti sama landslag og er hérna heima, það er að menn væru aktífari allt árið í kring, við erum með þessar hallir út um allt, þeir eru að gera þetta í Danmörku til dæmis. Vera með einhverskonar meistaradeild erlendis, áhugamannadeild og allt það en vissulega spila vegalengdir inn í þessa pælingu hér úti. En það þarf að vera einhver action, þú getur ekki bara sett hnakkinn þinn inní skáp í september og tekið hann út í maí. Og ég segi fólki alltaf hérna úti að ef það vilji læra á íslenska hestinn þá eigi það að fara til Íslands. Við ættum að reyna að koma á samstarfi til dæmis milli þýska íslandshestasambandsins sem í eru 25 þúsund manns og kannski Hólaskóla um að koma á einhverskonar kerfi sem virkar og er viðurkennt í báðum löndum, það ætti að vera grundvöllur til þess að ræða þessi mál. 

Að lokum vil ég bara óska Íslendingum til hamingju með allt það sem þið eruð að gera í sambandi við hestamennskuna sem er alveg frábært. Mér finnst við erlendis geta tekið íslendinga okkur til fyrirmyndar allstaðar bæði í umhirðu, hesthúsabyggingum, reiðhallarbyggingum, kennslu og þjálfun. Ég óska mér þess að við berum gæfu til þess að velja forystu fyrir FEIF sem að stendur undir nafni, sem er fyrir okkur öll en ekki bara fyrir sig. 

 

 

Höfundur: Hrafnkell Guðnason

    

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link