„Þetta er aldrei auðvelt val“
Landsliðið á HM árið 2019
Sigurbjörn Bárðarson var ráðinn í starf landsliðsþjálfara í janúar árið 2018. Í febrúar árið 2019 var starfinu breytt á þann hátt að landsliðshópur LH varð virkur allt árið um kring og þannig auka tækifærið til að sinna betur markvissu afreksstarfi í hestaíþróttum þar sem áhersla er lögð á knapann sem íþróttamann. Þetta er í þriðja skiptið sem Sigurbjörn tilkynnir um landsliðshóp á þennan hátt en auk þess hefur hann valið endanlegan hóp fyrir Norðurlandamótið í Svíþjóð árið 2018 og Heimsmeistaramótið í Berlín árið 2019.
,,Þetta er aldrei auðvelt val, en það sem gerir þetta kannski aðeins auðveldara er að það er miklu meiri eftirfylgni með knöpum en áður var og maður fylgist náið með öllu því sem gerist.“ Segir Sigurbjörn þegar hann er spurður að því hvort valið verði auðveldara með hverju árinu. ,,Þessi breyting sem var gerð á landsliðsmálum árið 2019 gefur okkur því tækifæri á að vera ennþá meðvitaðari um landsliðsvalið en áður þegar þetta var eitt úrtökumót. Þá gat það orðið aðeins tilviljanakennt hverjir komust í landsliðið en núna ber maður ábyrgð á því að velja þá í landsliðið sem maður telur líklegasta til góðra verka fyrir land og þjóð á hverju stórmóti fyrir sig.“ En er ekki erfitt að velja í þennan hóp í þeirri knapaflóru sem nú er hér á landi. ,,Það er miserfitt sum yfirburðarpör eru þannig séð sjálfvalin í landsliðið en þegar þetta er orðið spurning um 2-3 knapa sem koma til greina með svipaðan styrklega þá verður það flóknara.“

Landsliðshópurinn sem tilkynntur var í janúar á þessu ári en á honum hafa orðið breytingar
Í upphafi þessa árs var tilkynnt um landsliðsval og var þá stefnan sett á Norðurlandamót sem fara átti fram síðastliðið sumar en var aflýst eins og flestum öðrum stórmótum. Setti þetta strik í reikninginn? ,,Já það gerði það að vissu leyti. NM er ákveðinn gluggi til þess að fá að kynnast kannski fleiri knöpum en fara á HM og þá eins sjá hvernig hestakostur annarra landa er.“
Nú er hestaheimurinn ekki stór og allir þekkja alla, finnurður fyrir þeirri pressu sem fylgir því að vera landsliðsþjálfari? ,,Já ég geri það. Það er mikið af metnaðarfullum knöpum sem ætla sér að vera með í liðinu en komast svo kannski ekki í þennan endanlega 7 manna hóp sem fer á HM. Þá finnur maður vel fyrir því að maður er ekki á vinsældarlistum hjá þeim knöpum. En það er hluti af þessu starfi sem ég vissi að biði mín þegar ég tók við því og þá verður maður bara að þola það.“

Sigurbjörn Bárðarson landsliðsþjálfari í hestaíþróttum
Hefur Sigurbjörn fundið fyrir auknum metnaði knapa nú þegar landsliðið er skipað allan ársins hring? ,,Já ég tel það alveg hiklaust vera þannig. Ég er í persónulegu sambandi við landsliðsknapanna allt árið um kring. Þessi breyting skerpti klárlega línurnar og ég tel þetta vera orðið mun aðgengilegra og opnara en það var og það tel ég framför.“
Eins og áður segir tilkynnti Sigurbjörn um landsliðsval nú fyrir helgi og er landsliðshópurinn skipaður svo í starfrófsröð.
Ríkjandi heimsmeistarar og titilverjendur
Benjamín Sandur Ingólfsson, Fáki
Guðmundur Björgvinsson, Geysi
Jóhann Skúlason, Fáki
Konráð Valur Sveinsson, Fáki
Teitur Árnason, Fáki
Aðrir landsliðsknapar 2021
Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir, Herði
Árni Björn Pálsson, Fáki
Bergþór Eggertsson, Þýskalandi
Daníel Gunnarsson, Sleipni
Gústaf Ásgeir Hinriksson, Fáki
Hanna Rún Ingibergsdóttir, Sörla
Helga Una Björnsdóttir, Þyt
Hinrik Bragason, Fáki
Jakob Svavar Sigurðsson, Dreyri
Jóhanna Margrét Snorradóttir, Mána
Olil Amble, Sleipni
Ragnhildur Haraldsdóttir, Sleipni
Siguroddur Pétursson, Snæfellingi
Sigursteinn Sumarliðason, Sleipni
Snorri Dal, Sörla
Viðar Ingólfsson, Fáki
Þórarinn Eymundsson, Skagfirðingi
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH