Þetta gerðist árið 1979

  • 12. janúar 2013
  • Fréttir
Þetta gerðist árið 1979

Árið 1979 var kannski ekki viðburðarríkasta ár hestamennskunar. Og þó. Þegar gluggað er í blöðum frá því herrans ári kennir ýmissa grasa.

Dagur hestsins var haldinn í fyrsta sinn á Melavelli í Reykjavík – og voru þeir kannski undanfari Hestadaga í Reykjavík sem haldnir eru á vormánuðum?  

Keppnir af öllu tagi fá alltaf vænan þátt í Eiðfaxa blöðum og skipa kappreiðar ávallt heiðurssess.

Evrópumótið var haldið í Hollandi og mættu Íslendingar, eins og allra jafna, stórhuga og sigurvissir. En þegar hestainnflúensa smitaði alla hesta liðsins brustu vonir Íslendinga. Saga mótsins er sögð í máli og myndum. „Það er töluvert gott að vera kvensamur,“ segir Sigurður „hárfagri“ Sæmundsson í stórskemmtilegu viðtali því tengdu.

Fjórðungsmót fá væna umfjallanir og gaman er að fá innsýn inn í þessi skemmtilegu mót, í aðdraganda tveggja slíkra sem haldin verða í sumar, austalands og vestan. Má meðal annars nálgast viðtal við Sigurjón Gestsson sem sýndi Hrafnkötlu frá Sauðárkróki þegar hún sigraði A-flokk gæðinga á fjórðungsmótinu á Vindheimamelum.

Reynir Aðalsteinsson skrifar um stöðu íslenska hestsins erlendis í kjölfari af reynslu sinni af stórsýningunni Equitana í Þýskalandi.

Þá voru rannsóknir á hreyfimynstri hrossa hafin í dýralæknaskólanum Uppsölum og ritar Þorvaldur Árnason um þær – en frá Uppsalaskóla hafa svo komið einar merkustu rannsóknir um íslenska hestinn og er nærtækt að geta rannsókna á skeiðgeninu og augngöllum í vindóttum hrossum á síðasta ári.

Þá var gerð tilraun til útflutnings á blóðvökva úr fylfullum hryssum til notkunar í lyfjaframleiðslu.

Sveinn Jóhannsson á Varmalæk í Skagafirði segir frá ferðum yfir hálendið og Jón á Vatnsleysu er sóttur heim.

Val á landsmótsstað var hitamál á ársþingi LH, eins og oft svo hefur verið, og umræða um fækkun hrossa var til umræðu um haustið.

Sörlamenn byggðu upp aðstöðu sína á Setbergi og Stóðhestastöð BÍ á Litla-Hrauni fær mikla umfjöllun.

Þetta og meira til má nálgast í Eiðfaxablöðum frá 1979 sem nú eru aðgengileg hér:

 

Þessu tengt:

Gluggað í gömul blöð

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link