Þórarinn og Þóra sigruðu fimmgangskeppni KS-deildar
Þórarinn Eymundsson og glæsihryssan Þóra frá Prestbæ sigruðu fimmgangskeppni KS deildarinnar sem fram fór í gærkvöldi í Svaðastaðahöll.
Keppnin var hörð og spennandi og mjótt var á munum milli einkunna. Af átján skráðum hrossum sem skráð voru til leiks höfðu ellefu þeirra hlotið fyrstu verðlaun í kynbótadómi og var því mikil barátta um úrslitasæti.
Eyjólfur Þorsteinsson og Ögri frá Baldurshaga urðu í öðru sæti en með því heldur Eyjólfur toppsæti stigakeppni KS-deildarinnar með 18 stig. Bjarni Jónasson og Djásn frá Hnjúki urðu þriðju og stendur Bjarni í öðru sæti stigakeppninnar með 14 stig.
Úrslit mótsins urðu þessi:
A-úrslit
Þórarinn Eymundsson Þóra frá Prestbæ 7,10
Eyjólfur Þorsteinsson Ögri frá Baldurshaga 7,07
Bjarni Jónasson Djásn frá Hnjúki 6,95
Hörður Óli Sæmundarson Hreinn frá Vatnsleysu 6,86
Ísólfur Líndal Borgar frá Strandarhjáleigu 6,86
Baldvin Ari Guðlaugsson Sóldís frá Akureyri 6,57
B-úrslit
Ísólfur Líndal Borgar frá Strandarhjáleigu 6,95
Erlingur Ingvarsson Blær frá Torfunesi 6,69
Ólafur Magnússon Ódeseifur frá Möðrufelli 6,31
Árni Björn Pálsson Feldur frá Hæli 6,07
Forkeppni
1 Þórarinn Eymundsson Þóra frá Prestbæ 6,80
2 Eyjólfur Þorsteinsson Ögri frá Baldurshaga 6,80
3 Hörður Óli Sæmundarson Hreinn frá Vatnsley 6,53
4 Baldvin Ari Guðlaugsson Sóldís frá Akureyri 6,47
5 Bjarni Jónasson Djásn frá Hnjúki 6,47
6 Ólafur Magnússon Ódeseifur frá Möðrufelli 6,43
7 Ísólfur Líndal Borgar frá Strandarhjáleigu 6,37
8 Erlingur Ingvarsson Blær frá Torfunesi 6,37
9 Árni Björn Pálsson Feldur frá Hæli 6,37
10 Sölvi Sigurðarson Seiður frá Hafsteinsstöðum 6,23
11 Mette Mannseth Háttur frá Þúfum 6,23
12 Tryggvi Björnsson Blær frá Miðsitju 6,13
13 Þorsteinn Björnsson Kylja frá Hólum 6,10
14 Magnús B Magnússon Vafi frá Y-Mói 5,93
15 Jón Herkovic Formúla frá Vatnsleysu 5,83
16 Elvar Einarsson Svala frá Garði 5,73
17 Riikka Anniina Styrnir frá N-Vindheimum 5,60
18 Ragnar Stefánsson Maur frá Fornhaga 5,20
Stigakeppni
Staðan í stigakeppni knapa eftir tvær greinar er eftirfarandi:
1 Eyjólfur Þorsteinsson 18
2 Bjarni Jónasson 14
3 Þórarinn Eymundsson 11
4 Tryggvi Björnsson 8
5 Ólafur Magnússon 8
6 Hörður Óli Sæmundarson 8
7 Árni Björn Pálsson 6
8 Ísólfur Líndal 5,5
9 Mette Mannseth 4
10 Baldvin Ari Guðlaugsson 4
11 Erlingur Ingvarsson 3
12 Sölvi Sigurðarson 2,5
13 Elvar Einarsson 0
14 Magnús B Magnússon 0
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH