Þórdís Erla og Fengur fremst í flokki í Vesturlandsdeilldinni

  • 29. febrúar 2020
  • Fréttir

Fyrsta keppniskvöldið í Vesturlandsdeildinni á þessu tímabili fór fram í Faxaborg í Borgarnesi í gærkvöldi. í deildinni keppa sex lið sem hvert hefur á að skipa fimm knöpum en þrír knapar taka þátt í hverri grein.

Því taka eingöngu 18 knapar hvert kvöld og gengur forkeppnin hratt og örugglega fyrir sig.

Forkeppnin var jöfn og spennandi en að henni lokinni leiddin Siguroddur Pétursson á Eyju frá Hrísdal með einkunnina 6,77. Það var þó stutt í þær Þórdísi Erlu Gunnarsdóttur á Feng frá Auðsholtahjáleigu og Randi Holaker á Þyt frá Skáney sem voru jfanar í 2-3 sæti með einkunnina 6,70.

Keppt er bæði í til a-úrslita og b-úrslita en eins og tíðkast nú í mörgum deildum að þá ríður sigurvegari b-úrslit ekki til a-úrslita. Flýtir þetta fyrir framkvæmd kvöldsins.

Sigurvegari b-úrslita var Sigurður Rúnar Pálsson á Bessa frá Húsavík með einkunnina 6,63. Þær Iðunn Svandóttir á Sigurrós frá Söðulsholti og Hrefna María Ómarsdóttir urðu jafnar í 7-8 sæti með einkunnina 6,47.

Það var hins vegar Þórdís Erla sem stóð uppi sem sigurvegari að loknum a-úrslitum með einkunnina 7,17 en þetta var þeirra fyrsta keppni í fjórgangi innandyra. Siguroddur Pétursson farð annar með 7,03 og í þriðja sæti Randi Holaker með 6,83 í einkunn. Jafnir í 4-5 sætinu urðu þeir Guðmar Þór Pétursson og Haukur Bjarnason.

Það voru stelpurnar í Slippfélaginu sem voru stigahæsta lið kvöldsins en úr því liði komust allir knapar í úrslit. Þær Þórdís Erla, Hrefna María og Iðunn Lilja.

Stelpurnar í Slippfélaginu hlutu liðaplattan í fjórgangi

 

A-úrslit

 

  1. Þórdís Erla & Fengur frá Auðsholtshjáleigu; 7,17
  2. Siguroddur Pétursson & Eyja frá Hrísdal; 7,03
  3. Randi Holaker & Þytur frá Skáney; 6,83
  4. Guðmar Þór Pétursson & Ástarpungur frá Staðarhúsum: 6,67
  5. Haukur Bjarnason & Ísar frá Skáney; 6,67

B-úrslit

  1. Sigurður R. Pálsson & Bessi frá Húsavík; 6,63
  2. Hrefna María Ómarsdóttir & Eva frá Álfhóllum; 6,47
  3. Iðunn Lilja Svansdóttir & Sigurrós frá Söðulsholti; 6,47
  4. Leifur George Gunnarsson & Sveðja frá Skipaskaga; 6,40
  5. Linda Rún Pétursdótttir & Baltasar frá Korpu; 6,30
  6. Berglind Ragnarsdóttir & Smyrill frá Vorsabæ II; 6,30

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link