Þórdís Inga og Þorvaldur Logi unnu sína greinina hvor
Þórdís Inga og Heiða frá Skák á flugaskeiði í dag á Sörlastöðum. Ljósmynd: Gunnhildur Ýrr
Síðustu tvær greinarnar í 1.deild Hringdu fóru fram á Sörlastöðum í dag þar sem keppt var í gæðingaskeiði og 100 metra skeiði. Í kvöld fer svo fram lokahóf deilarinnar þar sem sigurvegarar í einstaklings- og liðakeppni verða krýndir.
Aðstæður í Sörla í dag voru góðar og gekk keppni vel.
Gæðingaskeið
Í gæðingaskeiði var það Þórdís Inga Pálsdóttir á Heiðu frá Skák sem bestum árangri náði og þar af leiðandi efsta sætinu. Hún sýndi hina flinku Heiðu frá Skák og hlutu þær samanlagt úr tveimur skeiðsprettum einkunnina 7,67. Í öðru sæti varð Páll Bragi Hólmarsson á Snjalli frá Austurkoti með 7,54 í einkunn og í því þriðja Siguroddur Pétursson á Tign frá Hrauni með 7,21. Stigahæsta liðið í gæðingaskeiði var lið Kidka/Hestakofa en fyrir þeirra hönd kepptu í dag, Siguroddur Pétursson, Frederika Fagerlund og Haukur Bjarnason.
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Þórdís Inga Pálsdóttir | Heiða frá Skák | 7,67 |
| 2 | Páll Bragi Hólmarsson | Snjall frá Austurkoti | 7,54 |
| 3 | Siguroddur Pétursson | Tign frá Hrauni | 7,21 |
| 4 | Benedikt Ólafsson | Tobías frá Svarfholti | 7,13 |
| 5 | Fredrica Fagerlund | Salómon frá Efra-Núpi | 7,08 |
| 6 | Jóhann Kristinn Ragnarsson | Þórvör frá Lækjarbotnum | 7,04 |
| 7 | Ingibergur Árnason | Flótti frá Meiri-Tungu 1 | 7,00 |
| 8 | Helgi Þór Guðjónsson | Dimma frá Syðri-Reykjum 3 | 6,88 |
| 9 | Haukur Bjarnason | Þórfinnur frá Skáney | 6,75 |
| 10 | Ævar Örn Guðjónsson | Elja frá Óðinstorgi | 6,50 |
| 11 | Anna S. Valdemarsdóttir | Sólon frá Bræðraá | 6,46 |
| 12 | Hafþór Hreiðar Birgisson | Möndull frá Halakoti | 6,33 |
| 13 | Hlynur Guðmundsson | Kraftur frá Svanavatni | 6,29 |
| 14 | Ólafur Þórisson | Assa frá Árheimum | 6,21 |
| 15 | Hermann Arason | Þota frá Vindási | 6,08 |
| 16 | Reynir Örn Pálmason | Lína frá Miklaholtshelli | 6,00 |
| 17 | Haukur Tryggvason | Lóa frá Ásbrú | 5,96 |
| 18 | Thelma Dögg Tómasdóttir | Sirkus frá Torfunesi | 5,96 |
| 19 | Rakel Sigurhansdóttir | Blakkur frá Traðarholti | 5,38 |
| 20 | Ólöf Rún Guðmundsdóttir | Hraundís frá Selfossi | 5,04 |
| 21 | Sigvaldi Lárus Guðmundsson | Hildur frá Feti | 4,71 |
| 22 | Friðdóra Friðriksdóttir | Árvakur frá Dallandi | 4,25 |
| 23 | Katla Sif Snorradóttir | Gimsteinn frá Víðinesi 1 | 4,21 |
| 24 | Birna Olivia Ödqvist | Bresi frá Efri-Hrepp | 3,42 |
100 metra skeið
Í 1oo metra skeiði var það Þorvaldur Logi Einarsson á Lukku frá Syðra-Langholti sem bestum tíma náði í 100 metra skeiðinu, 7,89 sekúndur sem skilaðu honum sigri í greininni. Næst besta tímann átti Páll Bragi Hólmarsson á Snjalli frá Austurkoti á 7,96 sekúndum og þriðja besta tíma náði Sigvaldi Lárus Guðmundsson á Hildi frá Feti á 8,01 sekúndu. Stigahæsta liðið í 100 metra skeiði var lið Sportfáka þar sem kepptu þau Páll Bragi Hólmarsson, Ingibergur Árnason og Katla Sif Snorradóttir
| Flugskeið 100m P2 | |||
| Fullorðinsflokkur – 1. flokkur | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Tími |
| 1 | Þorvaldur Logi Einarsson | Lukka frá Syðra-Langholti | 7,89 |
| 2 | Páll Bragi Hólmarsson | Snjall frá Austurkoti | 7,96 |
| 3 | Sigvaldi Lárus Guðmundsson | Hildur frá Feti | 8,01 |
| 4 | Ingibergur Árnason | Sólveig frá Kirkjubæ | 8,02 |
| 5 | Þórdís Inga Pálsdóttir | Friðsemd frá Kópavogi | 8,02 |
| 6 | Fredrica Fagerlund | Salómon frá Efra-Núpi | 8,27 |
| 7 | Benedikt Ólafsson | Tobías frá Svarfholti | 8,33 |
| 8 | Katla Sif Snorradóttir | Djarfur frá Litla-Hofi | 8,41 |
| 9 | Hlynur Guðmundsson | Stólpi frá Ási 2 | 8,42 |
| 10 | Helgi Þór Guðjónsson | Kolbeinn frá Hrafnsholti | 8,43 |
| 11 | Friðdóra Friðriksdóttir | Flugsvinn frá Ytra-Dalsgerði | 8,43 |
| 12 | Ólafur Þórisson | Edda frá Túnprýði | 8,45 |
| 13 | Jóhann Kristinn Ragnarsson | Þórvör frá Lækjarbotnum | 8,53 |
| 14 | Anna S. Valdemarsdóttir | Jökull frá Stóru-Ásgeirsá | 8,55 |
| 15 | Bjarney Jóna Unnsteinsd. | Klaustri frá Hraunbæ | 8,66 |
| 16 | Vilborg Smáradóttir | Klókur frá Dallandi | 8,67 |
| 17 | Haukur Tryggvason | Lóa frá Ásbrú | 8,73 |
| 18 | Eysteinn Tjörvi K. Kristinsson | Gná frá Borgarnesi | 8,89 |
| 19 | Reynir Örn Pálmason | Lína frá Miklaholtshelli | 8,92 |
| 20 | Rakel Sigurhansdóttir | Blakkur frá Traðarholti | 9,05 |
| 21 | Thelma Dögg Tómasdóttir | Von frá Ási 1 | 9,08 |
| 22 | Birna Olivia Ödqvist | Salka frá Fákshólum | 9,78 |
| 23-24 | Hulda María Sveinbjörnsdóttir | Amalía frá Þjóðólfshaga 1 | 0,00 |
| 23-24 | Sunna Sigríður Guðmundsdóttir | Flæðir frá Stykkishólmi | 0,00 |
Þórdís Inga og Þorvaldur Logi unnu sína greinina hvor
Ný stjórn deildar hrossabænda innan BÍ
Stefnir í skemmtilega Stóðhestaveislu!
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Rósa sigurvegari í gæðingaskeiði Samskipadeildar
Elva Rún vann ungmennadeildina
Fjöldi keppenda fyrir hvert félag á Landsmót