Þórður og Helga Dís til Þýskalands

  • 26. september 2011
  • Fréttir
Eiðfaxi Image

Þórður mun koma til Íslands næsta vor og taka þátt í kynbótasýningum. Hér tekur hann Kinnskæ frá Selfossi til kostanna.

Þórður mun taka þátt í kynbótasýningum á Íslandi í vor

Þórður Þorgeirsson, mesti knapi á kynbótahrossum fyrr og síðar, og kona hans Helga Dís Hálfdánardóttir, eru flutt til Þýskalands með fjölskyldu sína. Þau búa nú á hestabúgarðinum Overath, sem er í eigu Styrmis Árnasonar, og munu hafa aðstöðu þar, alla vega til að byrja með. Þórður mun áfram sinna því sem hann er bestur í, að þjálfa og sýna kynbótahross, en mun jafnframt sinna kennslu.

„Ég hef sérhæft námskeiðin mín í þjálfun og sýningu á kynbótahrossum og það er áhugi fyrir því hér,“ segir Þórður. „Að öðru leyti hefur ekkert breyst nema tamningastöðin er komin yfir hafið. Ég mun koma heim þegar sýningar hefjast í vor og sinna þeim eins og verið hefur.“ Þórður segir að það sé markaður fyrir góð og vel tamin hross í Þýskalandi. „Fólk er að leita að góðum og sjálfberandi tölturum. Menn eru spenntir fyrir stóðhestum eins og Kráki frá Blesastöðum, með mikið og auðvelt tölt.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link