Þórður og Karly fara mikinn

  • 4. október 2012
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Þórður Þorgeirsson og Karly Zingsheim fóru mikinn á gæðingamóti sem haldið var fyrir skömmu í Agiedenberg í Þýskalandi.

Þórður Þorgeirsson og Karly Zingsheim fóru mikinn á gæðingamóti sem haldið var fyrir skömmu í Agiedenberg í Þýskalandi. Þórður og Fláki frá Blesastöðum 1A sigruðu A-flokk gæðinga með einkunnina 9,30,  og Karly og Naddur vom Schluensee sigruðu B-flokkinn með einkunina 9,18. Fláki ku hafa verið stórkostlegur, sem reyndar má sjá á því að næstu hestur var með 8,60 í einkunn, en það var Skuggi frá Hávarðarkoti, knapi Sigurður Sigurðarson. Einkunnir í B flokki voru jafnari. Í öðru sæti varð Maxi frá Blesastöðum 1A með 8,75, knapi Flosi Ólafsson. Gamla kempan Andreas Trappe tók þátt á mótinu og var í 3. sæti í A flokki á Lindi frá Malborgh með 8,42 og 9. í B flokki á Braga frá Austurkoti með 8,53.

Því má svon bæta við að Fláki endurtók leikinn á Skeiðmeistaramótinu í Þýskalandi og varð þar efstur í A flokki gæðinga, knapi var að sjálfssögðu Þórður Þorgeirsson.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link