Þrá frá Prestsbæ með 10 fyrir samstarfsvilja
Þrá frá Prestsbæ á Landssýningu kynbótahrossa sumarið 2020. Knapi er Þórarinn Eymundsson
Kynbótasýning á Hólum í Hjaltadal er langt komin og mun ljúka með yfirlitssýningu nk. föstudag. Margt góðra hrossa hefur mætt í brautina og háar tölur litið dagsins ljós. Efsta hross eftir fordóma er hryssan Kamma frá Sauðárkróki, dóttir Aðals frá Nýjabæ og Kómetu frá Sauðárkróki. Kamma hlaut í fordómi 8,38 fyrir sköpulag, 8,78 fyrir hæfileika og aðaleinkunn upp á 8,64. Hlaut Kamma m.a. einkunnina 9,5 fyrir brokk og samstarfsvilja svo eitthvað sé nefnt.
Gæðingshryssan Þrá frá Prestsbæ mætti einnig í dóm í dag og þrátt fyrir að hafa hlotið lægri aðaleinkunn en hún gerði á seinasta ári er dómur hennar býsna athyglisverður þar sem hún fékk einkunnina 10 fyrir samstarfsvilja og 9,5 fyrir tölt, greitt stökk og fegurð í reið. Fyrir sköpulag hlaut Þrá 8,53 og fyrir hæfileika 8,55 skeiðlaus – aðaleinkunn upp a 8,55. Þrá hlaut 9 fyrir skeið í fyrra og því er spennandi að sjá hvað hún gerir á yfirlitinu nk. föstudag.
Sýnandi bæði Kömmu og Þráar var Þórarinn Eymundsson og því fer hann væntanlega sáttur í háttinn í kvöld ásamt ræktendum og eigendum þessara gæðingshryssna.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH