,,Þráinn er æðrulaus og gáfaður hestur“
Alþjóðlegt íþróttamót Sleipnis er í fullum gangi á Brávöllum á Selfossi og rétt í þessu var að ljúka úrslitum í fimmgangi meistara þar sem frábærir knapar og hestar öttu kappi.
Það fór svo að Þórarinn Eymundsson stóð uppi sem sigurvegari á Þránni frá Flagbjarnarholti með einkunnina 7,64. Blaðamaður Eiðfaxa var á staðnum og tók Þórarinn tali að úrslitum loknum en viðtalið má horfa á í spilaranum hér að ofan.
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1 | Þórarinn Eymundsson / Þráinn frá Flagbjarnarholti | 7,64 |
| 2 | Arnar Bjarki Sigurðarson / Álfaskeggur frá Kjarnholtum I | 7,55 |
| 3 | Hanna Rún Ingibergsdóttir / Dropi frá Kirkjubæ | 7,36 |
| 4 | Viðar Ingólfsson / Starkar frá Egilsstaðakoti | 7,31 |
| 5 | Teitur Árnason / Atlas frá Hjallanesi 1 | 7,19 |
| 6 | Eyrún Ýr Pálsdóttir / Roði frá Brúnastöðum 2 | 7,12 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH