Þriðji sigur Valdísar
Frænkurnar Helga Rún Sigurðardóttir og Valdís Mist Eyjólfsdóttir fagna hér Íslandsmeistaratitlum sínum, Valdís vann töltið og Helga Rún var stigahæsti knapinn í barnaflokki.
Valdís Mist Eyjólfsdóttir er búin að eiga frábæran dag á Íslandsmótin en rétt í þessu var hún að landa sínum þriðja sigri og er nú Íslandsmeistari í tölti, slaktaumatölti og barnaflokki.
Jafnir í öðru sæti í töltinu voru Aron Einar Ólafsson á Fengsæl frá Jórvík og Oliver Sirén Matthíasson á Öfga frá Káratanga með 6,94 í einkunn. Aron Einar og Fengsæll unnu einmitt B úrslitin í gær og Oliver og Öfi urðu Íslandsmeistarar í fjórgangi fyrr í dag.
Helga Rún Sigurðardóttir var einnig verðlaunuð sem stigahæsti knapinn í barnaflokki en hún átti góðu gengi að fagna á mótinu og var í mörgum úrslitum
Mótið er sýnt í beinni útsendingu á EiðfaxaTV. Dagskrá dagsins er aðgengileg hér neðar í fréttinni en einnig er allar upplýsingar um mótið að finna á HorseDay og facebook síðu viðburðarins.
Niðurstöður A úrslitum í tölti í barnaflokk
Tímabil móts: 22.07.2026 – 26.07.2026
Nr. 1
Valdís Mist Eyjólfsdóttir – Fákur – Hnota frá Þingnesi – 7,00
Hægt tölt 7,00 7,00 7,00 7,00 7,00 7,00
Tölt með hraðamun 6,50 6,50 7,00 7,00 7,50 6,83
Greitt tölt 7,50 7,50 7,00 7,00 7,00 7,17
Nr. 2-3
Aron Einar Ólafsson – Geysir – Fengsæll frá Jórvík – 6,94
Hægt tölt 7,00 6,50 7,00 6,50 7,00 6,83
Tölt með hraðamun 6,50 6,50 6,50 7,00 7,00 6,67
Greitt tölt 7,00 7,50 7,50 7,00 7,50 7,33
Nr. 2-3
Oliver Sirén Matthíasson – Fákur – Öfgi frá Káratanga – 6,94
Hægt tölt 7,00 6,50 7,00 6,50 7,00 6,83
Tölt með hraðamun 7,00 7,00 7,00 6,50 6,00 6,83
Greitt tölt 7,00 7,00 7,50 7,00 7,50 7,17
Nr. 4
Embla Sirén Matthíasdóttir – Fákur – Fluga frá Garðabæ – 6,89
Hægt tölt 7,00 6,50 7,00 7,00 7,00 7,00
Tölt með hraðamun 6,00 7,00 7,00 6,50 6,50 6,67
Greitt tölt 7,00 7,00 7,00 7,00 7,00 7,00
Nr. 5
Helga Rún Sigurðardóttir – Fákur – Drottning frá Íbishóli – 6,67
Hægt tölt 6,50 6,50 6,50 6,00 6,50 6,50
Tölt með hraðamun 7,00 6,50 6,50 6,50 6,50 6,50
Greitt tölt 7,00 7,00 7,00 6,50 7,00 7,00
Nr. 6
Svala Björk Hlynsdóttir – Fákur – Sigur frá Auðsholtshjáleigu – 6,44
Hægt tölt 6,50 7,00 7,00 7,00 7,00 7,00
Tölt með hraðamun 6,00 6,00 6,50 6,50 6,00 6,17
Greitt tölt 5,50 5,00 7,00 6,50 6,50 6,17
Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV