Þrír stóðhestar hljóta fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi í ár
Hringur frá Gunnarsstöðum stendur efstur hesta til að hljóta fyrstu verðlaun fyrir afkæmi í ár. Knapi Þórarinn Ragnarsson. Mynd: ÓÖJ
Til að stóðhestur hljóti fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi verður hann að uppfylla tvö skilyrði; 118 stig í kynbótamati og 15 dæmd afkvæmi. Í framhaldi af því að hross hljóta nú tvær aðaleinkunnir, með og án skeiðs, eru stóðhestum sem hljóta 118 stig eða meira í aðaleinkunn kynbótamats án skeið nú líka veitt afkvæmaverðlaun. Áfram verður þó miðað við aðaleinkunn kynbótamatsins þegar hestum er raðað í verðlaunasæti á stórmótum.
Þrír stóðhestar hljóta fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi í ár en það eru þeir Hringur frá Gunnarsstöðum, Hreyfill frá Vorsabæ II og Hófur frá Varmalæk. Þessir hestar fá allir afkvæmaorð birt í WorldFeng og verða síðan verðlaunaðir á næsta Landsmóti, ef þeir standast enn kröfur til afkvæmaverðlauna. Hófur er þó undantekning þar sem hann er staðsettur í Austurríki.
Þeir hestar sem hljóta fyrstu verðlaun fyrir afkæmi árið 2021
| Nafn | Uppruni | Ae. | Ae. án skeiðs | Fj. afkvæma |
| Hringur | Gunnarsstöðum I | 115 | 122 | 19 |
| Hreyfill | Vorsabæ II | 114 | 127 | 21 |
| Hófur | Varmalæk | 106 | 120 | 21 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH