Þrjár sýnikennslur í Þytsheimum

  • 26. nóvember 2012
  • Fréttir
Þrjár sýnikennslur í Þytsheimum

Guðmundur Arnarsson, Ísólfur Líndal Þórisson og Þórarinn Eymundsson verða með sýnikennslur í reiðhöllinni Þytsheimum á Hvammstanga nk. laugardag 1. desember. Dagskráin hefst kl. 17 að er fram kemur í frétt á vefsíðu hestamannafélagsins Glaðs:

 
„Fram koma:
Guðmundur Arnarson, þjálfari og reiðkennari
Ísólfur Líndal Þórisson, þjálfari og reiðkennari
Þórarinn Eymundsson, tamningameistari 
 
Aðgangseyrir 2.000 kr. sem renna óskiptar til hestamannafélagsins Þyts. Frítt fyrir 14 ára og yngri.
 
Allir hestamenn nær og fjær eru hvattir til að mæta enda um mjög áhugaverða fræðslu að ræða. Einnig verða verslanirnar Kidka, Knapinn Borgarnesi o. fl. með kynningu og sölu á vörum sínum í Þytsheimum þennan dag.“
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link