Þrönn frá Prestbæ efst

  • 24. ágúst 2012
  • Fréttir
Þrönn frá Prestbæ efst

Þá er síðsumarsýningunni á Akureyri lokið en 39 hross voru sýnd þar af 32 í fullnaðardóm. Þrönn frá Prestbæ er efst með 8,31 í aðaleinkunn. 8,43 fyrir hæfileika og 8,13 fyrir sköpulag. Þrönn er undan Þoku frá Hólum (8,64) og Gust frá Hóli (8,57) og er þar af leiðandi systir Þóru frá Prestbæ (8,77) og Þey frá Prestbæ (8,46).

Önnur er Freyja frá Flagbjarnarholti neðra en hún hefur hlotið 8,09 í aðaleinkunn þar af 8,06 fyrir sköpulag og 8,10 fyrir hæfileika. Freyja er undan Orra frá Þúfu í Landeyjum (8,34) og Krás frá Laugarvatni (8,13). Þriðji er Öngull frá Efri-Rauðalæk en hann hefur hlotið 8,04 í aðaleinkunn þar af 8,11 fyrir sköpulag og 8,00 fyrir hæfileika. Öngull er undan Krók frá Efri-Rauðalæk (8,38) og Sögu frá Þverá í Skíðadal (8,21).

 
Meðfylgjandi er dómur Þrannar, Freyju og Önguls:
 
IS2006201166 Þrönn frá Prestsbæ
Litur: 0500 Grár/moldótt einlitt
Sköpulag: 8,0 – 8,5 – 8,0 – 8,0 – 8,0 – 8,0 – 8,0 – 8,0 = 8,13
Hæfileikar: 8,5 – 8,5 – 8,5 – 8,0 – 8,5 – 8,5 – 8,0 = 8,43
Aðaleinkunn: 8,31      Hægt tölt: 8,0      Hægt stökk: 8,0
 
IS2006286843 Freyja frá Flagbjarnarholti neðra
Litur: 2500 Brúnn/milli- einlitt
Sköpulag: 8,0 – 8,0 – 8,0 – 8,5 – 8,0 – 7,0 – 8,5 – 7,0 = 8,06
Hæfileikar: 8,0 – 8,5 – 8,0 – 8,0 – 8,5 – 8,0 – 7,5 = 8,10
Aðaleinkunn: 8,09      Hægt tölt: 8,0      Hægt stökk: 7,5
 
IS2006165491 Öngull frá Efri-Rauðalæk
Litur: 2700 Brúnn/dökk/sv. einlitt
Sköpulag: 8,0 – 8,5 – 7,5 – 8,0 – 7,5 – 7,0 – 9,0 – 8,5 = 8,11
Hæfileikar: 8,5 – 8,5 – 5,0 – 8,5 – 8,5 – 9,0 – 8,5 = 8,00
Aðaleinkunn: 8,04      Hægt tölt: 7,5      Hægt stökk: 8,5

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link