Þúfur er Ræktunarbú ársins í Skagafirði

  • 19. desember 2022
  • Fréttir
Þórarinn Eymundsson var valinn kynbótaknapi ársins í Skagafirði.

Uppskeruhátíð hrossaræktarsambands Skagafjarðar var haldin síðast liðinn þriðjudag, 13. desember. Veitt voru verðlaun fyrir efstu þrjú kynbótahrossin í hverjum aldursflokki. Sörlabikarinn var veittur fyrir hæst dæmda kynbótahrossið innan HSS og einnig voru veitt verðlaun fyrir kynbótaknapa ársins. Tilnefnd til kynbótaknapa ársins voru þau Bjarni Jónasson, Mette Mannseth og Þórarinn Eymundsson. Einnig var hrossaræktarbú ársins í Skagafirði verðlaunað en tilnefnd voru Hestklettur, Hólaskóli og Þúfur.

Þau Mette Mannseth og Gísli Gíslason fóru heim drekkhlaðin af verðlaunum. Ræktunarbú þeirra, Þúfur, er Ræktunarbú ársins í Skagafirði. Lýsing frá Þúfum og Grýla frá Þúfum hlutu báðar viðurkenningar en þær hlutu heiðursverðlaun fyrir afkvæmi í haust. Einnig hlutu þau Sörlabikarinn en Hannibal frá Þúfum var hæst dæmda hrossið í flokki 7 vetra og eldri stóðhesta og hæst dæmda hrossið ræktað af félaga í HSS. Einnig voru þau ræktendur af Klukku frá Þúfum sem var önnur í flokki 5 vetra hryssna, Grímar frá Þúfum var annar í flokki 4 vetra stóðhesta og Töfri frá Þúfum var annar í flokki 6 vetra stóðhesta.

Þórarinn Eymundsson hlaut nafnbótina Kynbótaknapi ársins hjá HSS.

Efstu kynbótahross Skagafirði 2022 (ræktuð af félögum í HSS)

Hryssur

4 vetra

Agla frá Tölthólum A. 8,16   H. 8,02   B. 8,44
Eldey frá Prestsbæ   A. 8,15   H. 8,05   B. 8,34
Frísk frá Prestsbæ   A. 8,11   H. 8,13   B. 8,06

5 vetra

Hringsjá frá Enni   A. 8,33   H. 8,39   B. 8,20
Klukka frá Þúfum A. 8,21   H. 8,18   B. 8,28
Kjarnorka frá Flugumýri   A. 8,18   H. 8,15   B. 8,24

6 vetra

Staka frá Hólum   A. 8,49   H. 8,49 B. 8,49
Þenja frá Prestsbæ   A. 8,49   H. 8,39   B. 8,67
Grá frá Hofi á Höfðaströnd   A. 8,44   H. 8,47   B. 8,39

7 vetra og eldri

Álfamær frá Prestsbæ A. 8,87
Gjöf f. Hofi á Höfðaströnd A. 8,60
Kamma frá Sauðárkróki A. 8,55

Stóðhestar

4 vetra

Ambassador frá Bræðraá   A. 8,39   H. 8,45   B. 8,28
Grímar frá Þúfum   A. 8,25   H. 8,21   B. 8,33
Kvikur frá Nautabúi   A. 8,01   H. 7,85   B. 8,29

5 vetra

Fróði frá Flugumýri   A. 8,58   H. 8,54   B. 8,64
Sigurfari frá Sauðárkróki A. 8,41   H. 8,57   B. 8,11
Suðri frá Varmalandi A. 8,23   H. 8,18   B. 8,31

6 vetra

Frami frá Hjarðarholti A. 8,50   H. 8,58   B. 8,35
Töfri frá Þúfum A. 8,46   H. 8,48   B. 8,43
Síríus frá Tunguhálsi   A. 8,18   H. 8,19   B. 8,16

7 vetra og eldri

Hannibal frá Þúfum A. 8,68   H. 8,69   B. 8,66
Skarpur frá Kýrholti   A. 8,63   H. 8,64   B. 8,61
Seiður frá Hólum   A. 8,60   H. 8,58   B. 8,63

Heiðursverðlaunaverðlaun fyrir afkvæmi -Hryssur (eigendur sem rækta undan hryssunni þurfa að vera félagar í HSS)

Píla f. Syðra-Garðshorni
Grýla f. Þúfum
Lýsing f. Þúfum

Eyþór Einarsson kynnti og afhenti verðlaunin

Heiðursverðlaun – Stóðhestar

Hrannar frá Flugumýri (búinn að fá 2020) Verðlaunaður þá af HSS

Harpa og Bjössi taka við verðlauna fyrir Kná frá Ytra-Vallholti

1.verðlaun fyrir afkvæmi -stóðhestar (ræktandi stóðhestsins-félagi í HSS)

Knár frá Ytra-Vallholti

Lord frá Vatnsleysu (búinn að fá 2020) Verðlaunaður þá af HSS.

Sörlabikarinn.  Hæst dæmda einstaklingshrossið, ræktað og eigandi á lögheimili í Skagafirði (skv. reglum um Sörlabikarinn)

Hannibal frá Þúfum

Fulltrúar hrossaræktarbúanna sem voru tilnefnd; Þúfur, Hólaskóli og Hestklettur

Ófeigsbikarinn.  Hrossaræktarbúið:  Þúfur

Tilnefningar: Hestklettur og Hólaskóli

Kraftsbikarinn.  Kynbótaknapinn:  Þórarinn Eymundsson

Tilnefningar: Bjarni Jónasson og Mette Mannseth

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link